Hagnaður bankanna er tilkominn af hinum gífurlega vexti þeirra og hækkunar á eignum þeirra. Stimpilgjaldið er bara skattur, siðlaus þjófnaður eins og allir skattar, en bankarnir sjá ekki krónu af þeim peningum. Síðan er nú þetta alveg yndislegt dæmið sem þú komst með, vaxtasamráð banka, jamm, um áramótin síðustu voru vextir á húsnæðislánum í kringum 6%, nú eru þeir komnir niður í 4,2%, persónulega held ég að ég myndi vilja sjá meira samráð eins og þetta.