Fjölmiðlamenn uppskera eins og þeir sá. Fjölmiðlamenn hafa alla tíð verið manna duglegastir við að heimta nýjar reglur um allt á milli himins og jarðar, eða verið óbeinir málsvarar þeirra sem hingað til hafa allt viljað banna. Mér finnst það alveg ótrúlega fyndið að sjá að Kolbrún Halldórsdóttir sé á móti frumvarpinu, kona sem hefur heimtað manna mest að ákveðin tegund fjölmiðla sé gerð ólögleg, ef að hún fengi að ráða þá mætti varla sjást í geirvörtu í íslenskum fjölmiðlum. Ég er bara að...