Ég er sammála því að orðið talva sé óþolandi og ég fæ nánast klígju þegar ég heyri það, en rökstuðningur þinn er gallaður, að mín mati. Ástæða þess að fólk segir talva en ekki tölva er sú að orð sem hafa -ö- í stofni eru mjög sjaldgæf. Hins vegar er mjög algengt að orð hafi -a- í stofni og þegar þau taka -u endingu í aukaföllum verður u-hljóðvarp á stofninum svo að úr verður ö. Sem dæmi má nefna amma, um ömmu, frá ömmu, til ömmu. Satt best að segja man ég bara eftir tveimur orðum sem hafa...