Ég er í gaggó og væri alveg til í að ganga í skólabúningi. Þá þyrfti maður aldrei að hugsa út í það á morgnana í hverju maður á að fara í skólann. Skólabúningur þyrfti heldur ekki að vera ljótur, t.d. finnast mér bresku búningarnir algjör snilld (myndi samt aldrei ganga á Íslandi). Það ætti bara að vera þægilegur íþróttagalli, svo væri allt í lagi að geta valið úr nokkrum litum (og kannski tveimur sniðum).