Ég mæli með að taka frönskuna,franskan er mjög skemmtilegt mál og getur nýst þér víða eins og í Frakklandi, Sviss, Belgíu, Lúxemborg, Kanada og mörgum löndum í Afríku. Franskan er mjög lík spænskunni, ef þú ert sleipur í spænskunni þá ætti hún ekki að vera mikið mál. Ég hef tekið þýskuna, en mér þykir franskan mun skemmtilegri, þótt framburðurinn geti orðið mjög erfiður. Franska án vafa.