Já, en í alvöru talað þá held ég bara að Arsenal þurfi ekkert á Ronaldo að halda! Ronaldo er líka mjöööög sjálfselskur eins og del Bosque segir, hann heldur bara að hann sé bestur og það sé sjálfsagt að hann komist inn í öll lið. Nú held ég að allir séu orðnir þreyttir á honum og Vieira hafi aðallega sagt þetta til að lækka rostann í honum, sem veitir nú ekki af. Ég meina, þú þarft að hafa sjálfstraust og vera eigingjarn til að verða góður í fótbolta en þetta er nú einum of, að mínu mati!!!