já, það er vel hægt. Ég byrjaði með því að ég og pabbi áttum trommusett og ég fór bara og prófaði, það gekk eiginlega ekkert í fyrstu en málið er bara að halda áfram. Svo lærði ég líka mikið á því að vera með headphones og geislaspilara og spila eftir því sem ég var að hlusta á, s.s. Metallica, Led Zeppelin og Queen. Svo er líka gaman að horfa á mennina spila, það er hægt að læra mikið af því. Það er flest allt dýrt sem kemur nálægt trommum, byrjunarsett kostar milli 50 og 60 þúsund.