Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kannanastífla!

í Tolkien fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hehehe…kallarðu þetta kannanastíflu ? Ég er admin á köttum og þar eru kannanir sem búið er að samþykkja til 99 daga með 2 dögum á milli…svo bíða um 20 stk eftir því að verða samþykkt. Þetta er eftir að ég er búin að fara í gegnum þær og henda út þeim með stafsetningarvillum og líkum könnunum. Þannig að mínu mati ert þú bara í góðum málum :) IceCat

Re: kisan mín hvarf

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
http://www.mbl.is

Re: kisan mín hvarf

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Aðeins að prófa undirskriftir http:\\www.mbl.is

Re: Katta kynning í Garðheimum 4-5 okt

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta er ekkert smá spennandi, ég og sonur minn ætlum að fá okkur göngutúr á morgunn í Garðheima og skoða kisur. Sonur minn segjir nú ekki mið enda aðeins 17 mán. en eitt af orðunum er MJÁÁÁÁ sem hann segir með voða fallegri og blíðri röddu :) Þetta segir hann alltaf við kettina og líka reyndar við hundinn hehe :) IceCat og afkvæmi

Re: Ásatrú

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Að berjast í bardaga er ekki mottó ásatrúarmanna…ekki heldur til forna svo að það er alveg hægt að vera “alvöru” ásatrúarmaður án þess að langa til að berja mann og annan. IceCat

Re: Ásatrú

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Að mínu mati er Ásatrú ein mannúðlegasta trú sem til er. Einnig er Ásatrú í miklu samkrulli við náttúruna. Mæli með að allir lesi Gylfaginningu í Snorra-Eddu til að læra um uppruna og endalok heimsins, alveg stórskemmtileg lesning :) IceCat

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fyrir venjulegt fólk virkar ritalinið örvandi en fyrir ofvirkt fólk með öfug efnaskipti er ritalin róandi. Hef samt ekki hugmynd um hvort þetta sé ávanabindandi…er ekki allt sem er gott ávanabindandi annars ? IceCat

Re: Kattholts ættleiðingar

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hmmm…ég veit að aðeins sérvaldir fá kettlinga sem fæðast í Kattholti en hef ekki heyrt þetta með eldri ketti. Reyndar er kvef í köttum ömurlegt og þeir verða voða lasnir og ég geri ráð fyrir að það sé smitandi. Gott hjá þér að taka að þér kött úr Kattholti…ekki veitir af :) IceCat

Re: ÓDÝRARI símtöl til útlanda með heimsfrelsi???

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég tala talsvert til USA og hringi úr farsíma í heimasíma og hef ekki fengið neinn aukakostnað. Allt hefur staðist og þeir hafa ekki tekið fleiri mínútur af kortinu en ég hef talað fyrir. Furðulegt samt ! IceCat

Re: HJÁLP!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta er ósköp einfalt, annaðhvort gerið þið hann að innikött eða hann heldur áfram að koma með fugla, svona er þetta bara og þú stoppar ekkert eðlið hjá kisa. Aftur á móti eru til leiðir til að minnka fugladrápið eitthvað smá. Settu bjöllur á kisa, getur keypt stórar og hávaðasamar bjöllur í dýrabúðum, loka hann alltaf inni á næturnar og svo er spurning hvernig kisi myndi bregðast við ef þú tækir í hnakkadrambið á honum STRAX þegar hann kemur með fugl inn og hentir honum út með ópum og...

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Kæra Bonita, ég hafði ekki hugsað mér að vera með nein leiðindi og tel mig eingöngu hafa verið með vinsamlegar eiðbeiningar með stóru stafina. En svo endar þú bréfið þitt á að spurja mig hvað sé að mér og og að ég eigi bágt ??? Ég ætla ekki að leggjast niður á þitt lága plan ásamt vinum þínum í Dalsmynni og rakka þig eða þína persónu niður í skítinn. Það er almenn kurteisi að skrifa ekki með CapsLock á nema að þú sért að öskra og þú þarft ekki að leggja neina áherslu á það sem þú ert að...

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Kæra Bonita, í netheimum þýðir það að hafa CapsLock á lyklaborðinu að öskra svo plz slakaðu á CapsLockinu. Ég veit ekki betur en að hér ríki talsvert málfrelsi og Marta má alveg tjá sig um hvað sem henni dettur í hug á meðan það er innan ákveðinna kurteisismarka. Einnig fjallar þessi grein aðallega um hana og hún hlýtur að mega svara fyrir sig…ekki satt ? IceCat sem þolir ekki þegar fólk notar CapsLock of mikið !

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hmmm…nú veit ég ekki af hverju þú ert að svara mér, vona að það sé af því að ég átti síðast bréfið. Ég hef ekkert skipt mér af þessu rifrildi um Dalsmynni en eins og ég sagði áður þá fannst mér þessi grein furðuleg þar sem vegið er að einhverju sem fólk getur ekki að gert. Ég ákvað strax í byrjun að láta ekki ljós mitt skína hér þar sem það myndi bara auka á leiðindin. Mér finnst þú skrifa mjög vel og betur en margur sem ekki er lesblindur :) IceCat

Re: Þrír stílar Síamskatta

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég verð að segja að Old Style og Moderate eru talsvert fallegri heldur en þessi Modern. Reyndar er ég langlanghrifnust af Old Style þar sem ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir síamsketti yfirleitt :) Ég er meira svona NFO og MC manneskja ! Icecat sem á 2 Icelandic Domestic Shorthairs :)

Re: Minningargrein um Tarzan

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Doppu *voff* og ég get fullvissað þig um að þið gerðuð rétt. Kveðja, IceCat og Doppa

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í grein þinni kemur fram að Marta sjálf sé rangfeðruð og réði hún sjálfsagt ekkert um það svo ekki er hægt að tengja það við rangfeðranir hunda hennar…sem BTW ég veit ekkert um. Ég persónulega hef engan áhuga á að vera í HRFÍ þar sem hundurinn minn sem er blendingur með gullverðlaunin af hlýðninámskeiði gat ekki farið á veiðihundanámskeið því hann er ekki hreinræktur…þvílík vitleysa !!! Ég ákvað að skipta mér ekki af þessarri umræðu en þetta með faðerni Mörtu stakk svo í augað…það að vera...

Re: Kattanauðgun!

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hehehehe…gaman að þessu :) Ég reyndar trúi því engan veginn að Minette hafi verið nauðgað. Ég var sjálf með læðu á pillunni í þrjú ár og veit því hvernig hún virkar, læðan mín fékk pilluna alltaf á föstudögum einu sinni í viku og á miðvikudögum var hún farinn að finna fyrir kynferðislegum tilfinningum. Oft er það nú þannig að mök katta fara mjög harkalega fram og væri gaman að vita hvort fressið sé eitthvað meitt líka. IceCat

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég held að þú ættir að hætta því að setjast niður við tölvuna svona bálreið ! Marta er bara ein af þeim sem halda uppi mótmælum vegna Dalsmynnis. Þér finnst semsagt allt í lagi að það sé farið illa með hunda á einum stað af því að það var gert á öðrum stað ? Þvílík rök, ég held þú ættir að halda frekar uppi vörnum fyrir Dalsmynni heldur en að skíta út aðra sem eru sakaðir um að hafa gert það sama og Dalsmynni. IceCat

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Því miður er Marta “keno” bara einn af fjölmörgum sem hafa eitthvað á móti Dalsmynni og því ekki hægt að kenna henni eingöngu um mótmælin. Ég bara sé ekki að faðerni fyrrverandi hundaræktanda hér á Íslandi komi þessu máli eitthvað við. Svo ekki nóg með það þá ertu að hóta henni líka og gerir grín að notendanafninu hennar ??? Ég tek það fram að ég þekki Mörtu ekki neitt en ég er yfir mig hneyksluð á þessu svari þínu ! IceCat

Re: Hjálp!!

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já þú ert svo sannarlega ruglaður unglingur þegar þér finnst að stelpur eigi að læra að baka og strákar að fara á veiðar ! Annars las ég um daginn bók með bréfum frá Halldóri Laxnes þar sem hann skrifar heim til Íslands frá Kaupmannahöfn og þar segir hann nánast það sama og þú ert að segja. Þessi bréf voru skrifuð á árunum 1920-1930 og voru um ábyrgðarleysi og stjórnleysi ungmenna í Kaupmannahöfn á þessu tímabili. Þannig að þú ert ekki að uppgvöta eitthvað nýtt…hefði reyndar frekar haldið að...

Re: 2 hefur verið stolið

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Vinkona mín lenti einmitt í því að kisunni hennar var stolið. Bjó á Lindargötunni og einn daginn hvarf kötturinn hennar…hún alveg miður sín í nokkrar vikur og er svo að labba heim eitt skiptið og þá sér hún köttinn sinn í glugganum á næsta húsi. Hún bankar uppá og ætlar að þakka fyrir að hafa hugsað um kisann sinn og ná í hann en nei…konan sem þar bjó hélt nú ekki, hún ætti þennan kött og hefði átt hann frá því hann var kettlingur. Kisinn var mjög sérstakur á litinn og vinkona mín þekkti...

Re: hundabú.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þú ert að skrifa ágæta grein sem ég er reyndar alls ekki sammála en hvað kemur málinu við hvort einhver hundaræktandi sé rangfeðraður ??? Þú skaust þig í fótinn þarna með því að bera út slúður sem enginn hefur áhuga á. IceCat

Re: Hjálp!!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þarna er ég alls ekki sammála þér ! Ég las um daginn bók með bréfum frá Halldóri Laxnes þar sem hann skrifar heim til Íslands frá Kaupmannahöfn og þar segir hann nánast það sama og þú ert að segja. Þessi bréf voru skrifuð á árunum 1920-1930 og voru um ábyrgðarleysi og stjórnleysi ungmenna í Kaupmannahöfn á þessu tímabili. Þannig að þú ert ekki að uppgvöta eitthvað nýtt…hefði reyndar frekar haldið að þú værir eldri en þú ert að skrifa svona lagað. ÖLLUM kynslóðum finnast unglingarnir...

Re: Eyrnamerkingar

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Sæl Hamstur ! Eyrnamerking er yfirleitt gerð um leið og kettir eru geldir eða teknir úr sambandi. Þá eru kettirnir svæfðir og tækifærið notað til að merkja kisu í leiðinni. Ég held að eyrnamerkingin krefjist svæfingar en get samt ekki fullyrt það. Þetta er ekki sársaukafull aðgerð, kettirnir eru sofandi á meðan en gætu verið pínu aumir í sólarhring eða svo í eyranu. Nei það kostar ekkert að hafa upp á númerinu. Hver dýralæknastofa hefur sinn eigin staf og svo númer og eiga dýralæknar að...

Re: Getur það verið?????

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Eruð þið búin að þreifa vel á henni magann ? Samkvæmt lýsingu þinni þá gæti hún verið kettlingafull en það er samt mjög ótrúlegt þar sem ég held einmitt að legið sé tekið með öllu sem því fylgir þegar læður eru teknar úr sambandi. Hefurðu tekið eftir einhvers konar lóðaríi hjá henni og hversu langt er síðan hún var tekin úr sambandi ? IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok