Kannanastífla! Sæl veriði,

Hér á Simpsons er mikil kannanastífla eins og ég hef minnst á áður. Fyrir svona tveim vikum kom þetta upp, allt varð fullt. Ég ákvað þá að setja upp tilkynningu um þetta, en kannanirnar stoppuðu ekki en ég fór að eyða könnunum. U.þ.b viku seinna tók ég það til bragðs að setja upp mynd sem hljóðar svo “Við erum að berjast við kannanastíflu. Ekki senda inn fleiri kannanir í bili, allavega ekki næstu tvær vikurnar.” Ég hélt að þetta segði ykkur (þeim sem hafa haldið áfram að senda inn) að hætta að senda í viku eða tvær. Við höfum hinsvegar verið að fá kannanir og auðvitað eyðum við strax en þá fáum við í hausinn á okkur “Afhverju varstu að eyða henni???” og þannig skilaboð og mér var meira segja einu sinni sagt að ég væri lélegur admin. Ég vill biðja ykkur um að hætta að senda kannanir í eina viku, sjö daga. Þann 16/10 * 03 megið þið senda inn nýjar kannanir. Gerið það fyrir mig að taka mark á þessu.

Kveðja,
Hrannar Emm - Stjórnandi på Simpsons.