Igor Stravinsky (1882 - 1971) fæddist í Oranienbaum, nálægt St. Pétursborg, 1882 og var sonur óperu söngvara. Hann stundaði nám í St. Pétursborg og byrjaði að læra á píanó 9 ára gamall. Hann kynntist síðar tónskáldinu Rimsky-Korsakov þegar að hann var í sumarleyfi með fjölskyldu sinni upp í sveit. Rimsky-Korsakov gerðist kennari og leiðbeinandi Stravinsky (Stravinsky flutti meðal annars sína frystu píanó sónötu á setri Rimsky-Korsakov og sinfóníu í es). Stravinsky hafði enga aðra tónlistar...