Ég er alveg hjartanlega sammála. Hvet alla til að sleppa því að fara á þennan hryllilega stað. Mikið hefur verið um það að fólk keyri hringinn og er alveg sama þótt þeir keyri nokkra hunda niður í leiðinni. Það er miklu sniðugra að keyra aðeins út úr bænum og fara út í fallegu náttúruna með hundinn ;)
Hvað? Losuðu þið ykkur bara við hina hundana 5? Hvað átti við að hann hafi verið aumur blendingur. Ég persónulega þoli ekki chihuahua. Uppáhalds hundategundin mín er Cavalier King Charles Spaniel.
Ritstuldur! ef þið farið á http://www.midberg.is/ og farið neðst á forsíðuna á tíska og útlit undir bólur eða postulínsfés. Þar er dagsetningin 20. nóv. 2001
Pulsubitaaðferðin gekk ekki hjá mér. Um leið og ég hætti að taka pulsuna með í göngutúrinn byrjaði hann aftur að láta eins og brjálæðingur. Þeir verða bara háðir pulsunni.
´Mér finnst bara fínt að hafa svona marga aukapakka. Þá finna allir aukapakka við sitt hæfi. Það er alveg óþarfi að eiga alla pakkana. Sjálf á ég Sims hot date, Sims on holiday og Sims Superstar. Það er bara fínasta nóg.
Ég held að mamma þín yrði miklu ánægðari ef þú hefðir skilað henni í staðinn fyrir að nota hana aldrei. Mamma þín tekur alveg eftir því að þú sért aldrei í henni.
Vei. Til hamingju. Ég vil endliega sjá myndir af hvolpunum. En samt leiðinlegt fyrir greyið Molly að eignast hvolpa 11 mánaða. Hún er bara sjálf hvolpur.
“Ég er alltaf að spá í hvort ég sé með lystarstol en það getur ekki verið því að ég er frekar þybbin” þeir sem eru þybbnir geta alveg verið með lystarstol. Oft byrjar það þannig að manneskja finnist hún vera frekar þybbin og ákveður að fara í megrun og síðan fer þetta úr böndunum og hún byrjar að borða ekkert nema hrökkbrauð og gulrætur. Endilega byrjaðu að borða aftur.
Já mér finnst asnalegt að flestar stelpur á gagnfræðiskóla klæða sig eins. Versla ekki neins staðar annarsstaðar nema í 17 og Deres (sem er sama búðin) og eru allar með ljósar stræipur og þykkt meiklag og eyeliner. Mér finnst bara miklu flottara að vera minna málaður og ekki ganga í eins fötum eins og allar aðrar stelpur þ.e.a.s. td. Dieselbuxum og Hensonpeysum.
Neibb, það er útaf ljósum. Gæti líka tengst meikinu. Hefuru virkilega aldrei séð kerlingar um jafnvel fertugt sem eru eins og hraun í framann og geðveikt brúnar um allan líkamann?
Finnst þér að maður verði sætari að því að fara í ljós? Gerir brúnn litur mann sætari? Í þessu verð ég bara að vera mjög ósammála. Mér finnst það bara ekkert fallegra!
Slepptu því að fara í ljós! Ég er viss um að þeir krakkar sem fara í ljós 1x í viku eða oftar í mörg ár eigi eftir að vera með ógeðslega húð í framtíðinni. Hafiði ekki oft séð konur um fertugt sem eru með svo hrukkótta húð að þær gætu verið 70 ára. Þær eru svona hrukkóttar vegna reglulegra ljósatíma. Ég mæli með því að þú farir ekki í ljós vegna hættu á krabbameins sem stafar af miklum útfólubláum geislum í ljósabekkjum og vegna hrukka. Ef þú endilega þarft að fara í ljós til að falla í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..