Það sem gerðist fyrir garðinn og dyrabjölluna skiptir í rauninni ekki öllu máli. Aðalatriðið er að um leið og Haraldur, sem er persóna sem gerir allt fyrir alla án þess að spyrja endilega hvers vegna, hættir því skyndilega og er “refsað” fyrir með því að garðurinn hans o.fl. er eyðilagt. Linda er persóna sem kemur eins og stormsveipur inn í líf hans og lætur hann skilja að hann geti alveg fundið hamingju án þess að þurfa að þjónusta einhverja aðra, en um leið og Haraldur fylgir ráðum hennar...