var í bláfjöllum um daginn og það var vangefið hart, eins og að renna sér á ís alls staðar. ég sá tvo sirka 6 ára sem renndu sér af þvílíku sjálfstrausti niður gilið og gat ekki annað en dáðst að þeim, vonandi að þeir myndu halda áfram á sömu braut. verð alltaf pínku öfundsjúk að sjá hæfileikaríkakrakka á snjóbretti, sjálf bölvandi yfir því að hafa ekki byrjað nema fyrir 2 árum. ég man eftir því að hafa verið á skíðum í skálafelli þegar ég var 11 og sá í 1. skipti snjóbrettagaura, held að...