ég þoli ekki óregluna í mér!!!! Ég ét á milli mála, svo er ég svo mikið í skólanum…langt fram á kvöld að klára verkefni sem taka langan tíma og þolinmædð og þá er auðvitað kóksjálfsali sem ég stenst ekki freistinguna á!!!!! Ég ætla alltaf í sund en fer ekki nema til að fara í pottinn því það er svo kalt úti…langar helst að synda fullt af ferðum.

Ætla alltaf út að labba, en fer ekki því ég hef alltaf afsökun til að sleppa því!!!!

Kaupi mér alltaf eitthvað snakk eða súkkulaði í eftirrétt á eftir skyndibitafæði!!! Hugsa alltaf æi ég verð að leyfa mér þetta í þetta eina skiptið en leyfi mér alltaf!!!! Mér finnst ég svo þung á mér og þori ekki að fara á vigtina því þá fæ ég áfall!!!!
Mér finnst ég vera útbelgd af ístru sem tekur pláss þegar ég sit…ég sit ´.d. mikið við tölvuna´

Er að hugsa um að kaupa mér barnapela sem ég fylli reglulega af ísköldu vatni, og drekk úr honum í stað þess að borða á milli mála og hætta í skyndifæðinu…bara borða miklu minna!!!!!! Ég er orðin PARANOID og verð að fara í megrun.

Er alltaf að skoða mig á hlið í speglinum en er ekki feit á hlið…en finnst ég vera stutt og breið og kubbsleg!!!!!!!!!!!!!!!!! Langar að vera heilbrigð og fitness NÚNA en auðvitað verð ég að gera eitthvað í því.

Missti af baunasúpu ömmu á sprengidag og bað hana að frysta fyrir mig þangað til ég kæmi til Rvíkur en ég er ekki enn farin að borða hana (hrædd um að springa hehe :) ) en dauðlangar í hana og dauðlangar í súkkulaði og snakk akkúrat núna….nema ég er stolt af því að ég er ekki að leita í skápunum….heldur er ég með vantsglas hjá mér sem ég er búin að tæma!

Hvað segið þið? Á ég að gera eins og mig langar? Kaupa barnapela og drekka fyrir framan sjónvarpið eða á meðan ég les bækur?
Af hverju pela segið þið líklega? Þá er ég að tala um þolinmæði…það tekur tíma að drekka úr pela :) og það sýnir þolinmæði og tekur tíma frá þar sem ég gæti verið að borða nammi í staðinn…þá er ég bara að þamba úr pela eins og litlu börnin hehe…veit að ég er bjartsýn og með skrýtið hugmyndaflug ;)
En please ekki dæma mig illa…þetta var bara svona hugmynd að eyða tímanum í annað en að éta…drekka bara úr einhverju sem tekur tíma að drekka úr- og það vatn!!!!!!!