Ég er að spá hvort ég eigi að fara að hlusta á vinina, málið er það að þeir segja stundum(u.þ.b. alltaf þegar ég drekk)að ég eigi að slakka aðeins á og ná smá af mér áður en að ég byrja á næstu flösku sem er kannski einhvað til í en er aftur á móti ekki hægt að koma inn í hausinn á mér þegar ég er full.
ég var á balli í gærkvöldi og byrjaði snemma að drekka (var þó ekki að vakna sérstaklega til þess eins og sumir) en þegar ég mætti til vinanna um kvöldið var ég ekki en farin að finna á mér en þar drakk ég slatta og um 12 leitið þá var ég orðin kolrugluð. Við leigðum okkur limmu og ég sat við gluggan og tókst að loka á hausinn þegar ég var að kíkja út og er núna að drepast í framan:( svo á ballinu (held ég) gerðist einhvað er ekki viss hvað það var en ég er með stórann marblett á lærinu og það er komin kúla þar ég vissi ekki að það væri hægt að fá kúlu á lærinn en alltaf lærir maður einhvað nýtt. svo gerðist eitt sem toppaði allt kvöldið það er að ég týndi töskunni minni og í henni var fullt af alskonar drasli tveir símar (minn og vinkonu minnar), myndavél sem ég á ekki, snyrtidót sem ég var með í láni af snyrtistofunni sem ég fór á í förðun og líka einhvað sem vinkona mín hafði fengið lánað og svo var einhver peningur og debetkort svo þetta er að öllum líkindum dýrasta ball sem ég hef nokkurntímann farið á og allt bara af því að ég var of full til að spá einhvað í að ég væri með tösku með mér og nú er ég búin að týna 3 símum síðan í lok ágúst og engum sérstaklega ódýrum:(
Ég tala af reynslu: