Gott að þú hugsaðir bara „mér hlýtur að vera að misheyrast“, en sagðir það ekki upphátt, því það hefði verið ógeðslega kaldhæðnisleg og asnaleg málvilla í þessu samhengi og að mínu mati mun ljótari en sú villa sem gagnrýnin byggist á. Þér heyrist ekkert frekar en mér hlakkar til.
Hann er samt sitjandi ráðherra í ríkisstjórn og formaður stjórnmálaflokks. Það er ömurlegt. Ég held að hann sé gamall kommúnisti. Ég borðaði einu sinni vöfflu með honum.
Ég ætla ekki að taka það af þér að hugsunin sé góð, en hugsun er bara ekki nóg. Ekki fyrr en hún verður að aðgerð. Það sem langflestir gera er að hugsa um að hjálpa og styrkja góð málefni og geta þá réttlætt fyrir sjálfu sér allt óréttlætið í kringum þau. Eins og það sé nóg að hugsa um að hjálpa fólki. Crazy shit…
Já, já, það er alveg hægt að kæra ríkið, en hvernig ætlaru að vinna mál við ríkið sjálft eða ríkisstofnanir? Án þess að vita það með vissu þá held ég að það sé erfitt og rándýrt fyrir almenning að kæra ríki til alþjóða dómstóls.
Hvernig geta ríki gert eitthvað ólöglegt? Bætt við 24. nóvember 2009 - 21:32 OK, pointið kemst örugglega ekki til skila, en ég er að benda á að ríkið býr til lögin. Ríkið ER lögin og má gera allt.
Hins vegar þarf sjúklingurinn að hafa prófað öll önnur lyf á lyfjamarkaðnum sem gætu hugsanlega verið notuð í staðin fyrir kannabis og þá skipta aukaverkanir engu máli. Kannabis er algjörlega síðasti kosturinn og við vitum öll að frekar myndu yfirvöld láta sjúkling kveljast eða þá að sprauta hann með sterkum fíkniefnum eins og morfíni, heldur en að gefa honum kannabis. Krabbameinssjúklingar fá ekki einu sinni kannabis frá yfirvöldum þó þeir virkilega þurfi á því að halda.
Hins vegar þarf sjúklingurinn að hafa prófað öll önnur lyf á lyfjamarkaðnum sem gætu hugsanlega verið notuð í staðin fyrir kannabis og þá skipta aukaverkanir engu máli. Kannabis er algjörlega síðasti kosturinn og við vitum öll að frekar myndu yfirvöld láta sjúkling kveljast eða þá að sprauta hann með sterkum fíkniefnum eins og morfíni, heldur en að gefa honum kannabis. Krabbameinssjúklingar fá ekki einu sinni kannabis á Íslandi þó þeir virkilega þurfi á því að halda.
Nei, þeir sem eru á skilorði fara ekki í svona test. Kannski ef einstaklingurinn er tekinn fyrir ítrekuð vímuefnabrot, en það er a.m.k. ekki gert að staðaldri.
…hvaða máli skiptir það? skipta peningar einhverju máli í sambandi? ég skil alveg að þér finnist óþægilegt að borga allt fyrir hann, enda ættiru þá bara að minnka það, en að það sé vandamál að hann gefi þér ekki nóg í efnislegum hlutum finnst mér alveg fáránlegt.
Lol, þetta skot í lokin fékk mig til að rifja upp nokkur gömul og klassísk svör frá honum. Djöfull sakna ég að lesa sósíalista forræðishyggjuáróðurinn hans.
Já það er ótrúlega þægilegt að leggjast í grasið eða snjóinn og stara á stjörnurnar. Það er svo góð slökun og svo dett ég alltaf í einhvern trans og missi allt tímaskyn, hehe. Ég gæti legið í marga daga og horft upp í stjörnurnar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..