Margt af því sem við lærum í skóla snýst um að muna, já, en eru það gáfur? Gáfur fyrir mér er það að þekkja umhverfið og dýptina í kringum okkur. Við lærum það aldrei með því að stimpla eitthvað í hausinn á okkur og rembast við að muna, við lærum það með því að efast um allt, beita rökhugsun og læra af mistökum. Það síðasta er líklegast lykilatriðið. Fólk segist vera gáfað vegna þess að því gengur svo vel í skóla, en á sama tíma hefur það aldrei spáð í því hvað gáfur séu í raun og veru. Það...