Fólk sem er að berjast fyrir kannabis hægri vinstri, hættið þessu bara, það er bara einfaldlega ekkert gaman við að reykja kannabis. Fáið ykkur bjór og farið að djamma í staðinn fyrir að fá ykkur jónu, sitja heima hjá ykkur og fá ekkert að ríða.

Já, ég hef prófað þetta, og mér fannst þetta bara einfaldlega leiðinlegt.

Lögleiðing, hverjum er ekki sama? Það er ekki einsog það muni breyta neinu, ekki einsog þú fáir dóm fyrir að reykja kannabis. Neysla þess mun bara aukast, og þið sem eruð búnir að láta glepjast af propaganda frá Hollandi um að neyslan hafi bara minnkað eftir lögleiðingu, þá er það einfaldlega rangt.

Finnið ykkur eitthvað annað að gera en að reykja þetta drasl.
Sjáumst!