En það gerir það heldur ekki óraunverulegra. Hvernig getur eitthvað verið óraunverulegt? Þessi tvö orð eru mér algjörlega óskiljanleg. Þú segir hér fyrir neðan að það sem mannsheilinn vinnur úr út frá skynfærunum sé raunveruleikinn, en hvað með alla aðra upplifun? Eru hugsanir okkar, ímyndanir, draumar og fantasíur ekki raunverulegar? Það gerist líka margt fyrir utan mannsheilann. Önnur dýr skynja lífið óneitanlega á annan hátt en við, en það gerir þeirra skynjun ekki óraunverulega. Ég var...
Dæla þessu pakki úr landi, sóun á súrefni/ Semja no’sense texta um pólítísk málefni/ Og sama hvað þykjast þeir alltaf vera þessi “know it all”/ HAHAHA hættu. Tónlist er rödd þeirra raddlausu og rapp hefur mjög hávær rödd fyrir margskonar réttlætisbaráttu since Zulu Nation. Að skjóta á fólk fyrir að rappa á öðru tungumáli þegar maður hefur ekki sjálfur vald á sínu eigin tungumáli er bara kjánalegt. Þessi líklega kaldhæðni titilsins er líka í algjörri mótsögn við innihaldið og þess vegna er...
Já, Lowkey is the shit. Ég er ógeðslega hrifinn af textunum sem koma frá þessum gæjum sem tengjast Poisonous Poets, a.m.k. Lowkey, Doc Brown, Mic Righteous og Wordsmith. I'm not anti-America, America is anti-me!
Já, ég gisti heima hjá kaþólskri stelpu sem á strangtrúaða kaþólska mömmu. Frekar fucking skemmtileg upplifun! En ég ætla ekkert að fara út í smáatriði, skal bara segja að mamman hafi verið mjög reið.
Ég hlustaði einu sinni soldið mikið á hann því mér finnst hann skrifa um merkileg málefni, en svo missti þolinmæðina og gafst upp á þessu sósíalista propaganda bulli sem hann treður í nánast alla texta sem hann skrifar. Fuck hvað það er böggandi.
Labbaði niðrí bæ með vinkonu minni til að fara í þynnkumat og chill, bara til að muna að það væri kominn 1.janúar og þar af leiðandi allir staðir lokaðir, nema 10-11. Það fyrsta sem ég keypti mér var gras á alltof mikinn pening af einhverjum gæja sem ég hitti á áramótafylleríinu… og þar með sleit ég áramótaheitið hehe. Öl getur verið böl og sömuleiðis peningar.
Eitthvað held ég að það hafi lítið með þroska að gera og þá meira með félagslegar aðstæður. Þannig er bara félagslega uppeldið í samfélaginu okkar þar sem okkur er kennt strax frá fæðingu að ákveðin hegðun er kynbundin.
Ég fór að hugsa út í það um daginn hvort að einn vinnufélagi minn gæti mögulega verið… þú! Hann minnir mig allavega á þig. Creepy? Ákvað bara að segja þér það fyrst ég sá komment hérna frá þér. Any chance? :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..