Jesús sagðist ekki vera kominn til að afnema lögmálið heldur uppfylla það, þannig að Páll postuli hefur ekki viljað afneitað uppruna kristnu trúarinnar heldur farið handan við hann, sbr. boðorðin 10 héldu gildi sínu en það væri nóg að bera elsku til Guðs og náungans sem er inntak æðsta boðorðsins, þá þyrfti maður ekki að hugsa frekar um boðorðin tíu því elskan felur öll boðorðin í sér og meira til. Boðorðin 10 verða þá ekki að þvingandi ytra boðunarvaldi heldur þörf sem maður finnur innra með sér.