Ég er ekki endilega á því að þetta sé slæmur strákur. Hitt finnst mér líklegra að hann hafi bara ekki hugmynd um það hvað hann á að gera. Hann er ungur og hefur ekki allveg hugmynd um hvað hann vill. Málið með stráka er, að þeir geta yfirleitt ekki viðurkennt að þeir séu ráðþrota. Þegar þeir eru ráðþrota, þá verða þeir hræddir, og þegar þeir eru hræddir þá geta þeir ekki tekið skynsamlegar ákvarðanir. Annaðhvort reyna þeir eitthvað án þess að hugsa málið til enda, eða að þeir hugsa málið...