Gott og vel að þú ætlir að fyrirgefa öllum sem koma fram við þig sem gólftusku, það er svo sem ekkert heilbrigt að vera að halda úti einhverju hatri í garð fólks. En ef að þú ætlar alltaf að gefa þeim annað tækifæri, þá áttu eftir að verða undir í lífinu, vina mín. Það er að sjálfsögðu auðveldara að sætta sig bara við hlutina eins og þeir eru, frekar en að reyna breyta þeim. Í því er hamingjan fólgin, er það ekki?