Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Nirvana - Hormoaning

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það var mikið að það kemur einhver með viti hingað inn!!! Það má vel vera að Patton hafi fílað Nirvana eitthvað, en sem betur fer er músíkin hans á allt öðru kalíberi heldur en skrumið í Nirvana. Það getur vel verið að það hefði getað orðið eitthvað almennilegt úr Nirvana hefði Kurt lifað. Aðrir meðlimir Nirvana eru nú ekki að gera góða hluti í dag að mínu mati, en ef þeir hefðu notið lengur við leiðsögn snillinga, og ekki sokkið í opna gryfju eiturlyfja, þá er aldrei að vita hvað væri í...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það er rétt. Tíminn mun leiða þetta í ljós en ég hef á tilfinningunni að þeir séu í vondum málum.

Re: Nirvana - Hormoaning

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
hehe ég hef troðið mér í fötu milljón sinnum og fílað vel! En að skjóta sig í hausinn er iðulega síðasta úrræði þeirra sem telja ætlunarverk sitt hafa mistekist. Vissulega er Hitler einn af þessum mönnum. En ég ætla ekki að brydda upp á stjórnmálaumræðu hér á þessu áhugamáli. Vildi bara benda fólki á hversu mikið sell-out Nirvana er og hversu auðvelt er að finna orginal tónlistarmenn ef fólk lítur aðeins niður fyrir yfirborðið. En það þýðir víst lítið hér, þig hljómið einsog sértrúarsöfnuður.

Re: Hvað eruði að hlusta á NUNA

í Half-Life fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég er að hlusta á King for a Day, Fool for a Lifetime með Faith no More! Bestu hljómsveit síðari tíma.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það var nú bara í fréttum rétt áðan að breskur blaðamaður fékk að fylgjast með einni hreyfingu í Írak í smá tíma. Og hann segir að þessar sveitir séu mjög skipulagðar og mun betur vopnum búnar en Bandaríkjastjórn vill láta uppi um. Og að þær fái mikið af vopnum og fjármagni og sé stjórnað af Saddam Hussein. Þetta er held ég í næsta Time blaði. Ég hugsa að þeir eigi aldrei eftir að ná að brjóta andspyrnuna alveg á bak aftur. Almenningur er of mikið á móti þeim til að það eigi eftir að gerast.

Re: Nirvana - Hormoaning

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Betra að vera svalur en falur!

Re: Rétt eða Rangt??? Það er spurningin...

í Heimspeki fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Nytjahyggjumenn sögðu að það sem skapar meiri hamingju en óhamingju hlýtur að vera rétt. Þ.a.l. getur það reynst rétt í sumum tilfellum að stela og ljúga, ef það leiðir af sér meiri hamingju fyrir þann sem á í hlut. En það er svo auðvelt að hrekja þetta að upp kom reglunytjahyggja. Þar er sagt að þó að það gæti virst stundum rétt að stela, þá, einsog þú bendir á að maðurinn var tekinn, leiðir það ekki alltaf af sér meiri hamingju. Þess vegna aðhylltust þeir það sjónarmið að þú skalt ekki...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Stríðið í Írak er búið að breytast úr klassískum hernaði yfir í skæruhernað og þannig hernaður verður ekki unninn, það er bara staðreynd og Bandaríkjamenn ættu að vita það best allra manna. Enda er það fyrst núna sem einhver fjöldi hermanna er að deyja, þeir ráða ekki við skæruhernað!

Re: undankeppni HM2006

í Stórmót fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hann og Hassailbank skoruðu nú saman yfir 50 mörk á einu tímabili þegar Zola þurfti að verma bekkinn. Persónulega finnst mér hann bestur af þeim framherjum sem eru í Chelsea í dag. Hann er langbesti spilarinn, auðvitað eru Crespo og Hassailbank fæddir markaskorarar og Mutu hættir aldrei, en Eiður er sá sem skapast lang mest hætta frá þegar hann er með boltann. Maður treystir eiginlega Crespo alltaf til að klúðra málunum ef hann fær boltann í lappirnar fyrir utan teig. Í sömu stöðu er Eiður...

Re: Nirvana - Hormoaning

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
hahahaha kelling!!! Þú veist greinilega ekki hvað þú ert að tala um, ég hef sjaldan heyrt meira píkupopp en Nirvana, algjörlega lausir við allt sem heitir tónlistargáfur og gátu bara nurlað saman lögum sem þeir stálu annars staðar! Og það er hrein factum! Ég meina hver tekur mark á manni sem var svo gáfaður að hann þurfti að skjóta sig í hausinn með haglabyssu? Ég hef ekki vitað meiri kellinga og aumingjaskap en það! Legg til að þú hlustir allavega á Pixies, þá muntu heyra hvaðan mörg lög...

Re: Skondnir hlutir

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Skuggi getur þá kynnt sér málið sem hann er að fjalla um áður en hann básúnar bull út í loftið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er skotinn niður í svaðið hérna á Huga og á það allt rétt á sér. Að hann sé afbrýðisamur útí öryrkja fyrir að fá aura frá ríkinu án þess að vinna er bara því hann er með massa minnimáttarkennd. Og hvorki örorkubætur né atvinnuleysisbætur eru háar. Bæturnar mínar eru t.d. 66.000 kall á mánuði! Vill einhver fá?????

Re: Nirvana - Hormoaning

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Nirvana sökkar feitt!! Kurt Cobain sagði það sjálfur að ef Pixies hefðu aldrei verið til þá hefði Nirvana aldrei orðið til heldur!! Legg til að fólk fari að hlusta á alvöru rokk og þar er ein hljómsveit sem stendur með herðar yfir aðrar…Faith no More!!

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Allt sem þú telur upp þarna sýnir hversu miklu meiri ógn N-Kórea er við heiminn heldur en Írak er og var. Hvers vegna þá að ráðast inní Írak? Kim Jong-Il er búinn að mála sig útí horn og það þarf engan veginn að vera að hann myndi nota öll vopnin sem hann á. (sem n.b. engar sannanir eru fyrir heldur!) Það sem ég er að segja er að úrþví Bandaríkjamenn segja að Írak hafi verið mikil ógn, sem ég dreg mjög í efa, en slepptu að ráðast gegn stærstu ógninni þá eru þeir þarna í enhverjum öðrum hugleiðingum.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Allt sem þú telur upp þarna sýnir hversu miklu meiri ógn N-Kórea er við heiminn heldur en Írak er og var. Hvers vegna þá að ráðast inní Írak? Kim Jong-Il er búinn að mála sig útí horn og það þarf engan veginn að vera að hann myndi nota öll vopnin sem hann á. Það sem ég er að segja er að úrþví Bandaríkjamenn segja að Írak hafi verið mikil ógn, sem ég dreg mjög í efa, en slepptu að ráðast gegn stærstu ógninni þá eru þeir þarna í enhverjum öðrum hugleiðingum.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þakka þér! Kannski að ég eigi minn stað í þínu hjarta? ;-)

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nei að sjálfsögðu ekki! Ég vil að fólk fari með rétt mál hérna og sé ekki baunandi froðu í allar áttir eins og sumir gera. En Ísland byggðist í raun fyrst af Norðmönnum með góðan slatta af írskum þrælum innanborðs, varla hægt að kalla þá Íslendinga!

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég lít á þessi mál eftir þeim staðreyndum sem í boði eru. Bandaríkjamenn gera ekki neitt þessu líkt út af mannúðarsjónarmiðum. Nú eru í gangi allskonar safnanir í Bandaríkjunum sem eiga að hjálpa stríðshrjáðu fólki í Írak og Afganistan. Hefurðu vitað meiri hræsni og niðurlægingu. Fyrst koma þeir og sprengja upp landið og drepa fullt af fólki og ætla svo að láta það allt hverfa og virðast góðu gæjarnir með hjálparstarfi. Og þessar safnanir eru iðulega á vegum almennings eða sérstaka hópa og...

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
það er rétt að íslensk stjónrvöld lögðu blessun sína yfir innrásina, sem mér finnst vera einn stærsti skandall í stjórnmálasögu Íslands síðan við fengum sjálfstæði. En íslensk stjórnvöld eru þó ekki búin að vera að vaða yfir önnur ríki hinum megin á hnettinum í okkar eigin þágu. Það hafa Bandaríkjamenn verið að gera í mið-austurlöndum. Þeir hefðu nú getað áttað sig á því að fólk lætur ekki vaða yfir sig endalaust og að þeir myndu fá þessa breytni sína í hausinn aftur.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta er ekki raunin í mínum veruleika. Ef þetta er svona hjá þér segir það mest um þig og þína. Þegar þú verður uppiskroppa með almennilega málafærslu þá ferðu að bulla svona vitleysu sem í raun enginn getur sagt neitt við því þetta er eitthvað inní hausnum á þér og þú reynir að klína því uppá aðra! Einsog Icewoman segir frá þá skulum við vera heppin að búa á Íslandi og passa okkur á því að taka ekki upp neitt sem tíðkast í Bandaríkjunum, því þá erum við á hraðri niðurleið. Ég ætla ekki að...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Kallar þú það mjög mikið lýðræði þegar fólk fer aftur og aftur og kýs sömu fíflin án þess að spá í atkvæði sínu ? Ég já tel að ef að kosning væri í kringum helming að þá væri hærra hlutfall af þeim sem að spá vel út í það hvað þeir eru að gera með atkvæði sínu.” Jedúddamía!!! Sem betur fer eru ekki allir jafn vitlausir og þú og ég þekki ekki einn einasta mann sem spáir ekki í því hvað hann á að kjósa eða myndar sér ekki greinargóða skoðun á þeim kostum sem í boði eru. Hvaðan kemur þú eiginlega?

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hvað var Saddam búinn að lofa þeim?? Þú ert svo loðinn að það mætti halda að þú værir górilla!! Frá 1991 var viðskiptabann á Írak og þeir fengu ekki að selja olíu nema í því skyni að fá nuðsynjar fyrir hana. Það var enginn að græða á Írak á þessu tímabili. Það er fyrst eftir að Bandaríkjamenn ráðast inní Írak sem banninu er aflétt. Og í þágu hverra? Landsstjórnarinnar sem ræður í Írak núna, a.k.a. USA.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Bandaríkjamenn eru búnir að skjóta sig í fótinn í Írak og núna vilja þeir að þjóðir heims komi og hreinsi upp drulluna eftir þá! Þeir eru einfaldlega að reyna að koma ábyrgðinni frá sér yfir á alla aðra. Ég er ánægður með Frakka og Þjóðverja, þeir mótmæltu stríðinu harðlega frá upphafi og eru ekki tilbúnir til að moka flórinn undan dýrum annarra fyrir enga umbun.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Kosningahlutfall of mikið!!! Þú ert semsagt ekki hlynntur lýðræði ef það er mjög virkt?? Ég trúi ekki að Ísland hafi alið þennan mann sem þú hefur að geyma. Nú þori ég ekki að staðhæfa, en ég veit ekki betur en það sé ókeypis að kjósa í Bandaríkjunum, þú þarft bara að skrá þig fyrirfram. Og hvað leiðir svoleiðis “lýðræði” af sér? Að peningakallarnir stjórna! Og við erum að sjá afleiðingar þess núna.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Til hvers annars heldurðu að þeir séu þarna? Heimsmarkaðsverð á olíu hlýðir ekki markaðslögmálum. Það eru samtök olíuríkja sem einfaldlega ákveða verð á olíu. Um miðjan 8. áratuginn var verð sprengt upp úr öllu valdi og af hlaust olíukreppa. Ekki út af skorti heldur út af því að arabaríki blöskraði sóun vesturlanda á olíunni í eigin þágu. Helstu bandamenn bandaríkjanna við Persaflóa hefur í gegnum tíðina verið Saudi-Arabía. Síðustu ár hefur andstaða við Bandaríkin vaxið þar í landi sem og í...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Kosningaþáttaka nær ekki einu sinni 30% í Bandaríkjunum þannig að augljóst er að almenningi er alveg sama. Þetta eru peningakallar í sínu hagsmunastríði og ekkert annað. Bandaríkin hafa kallað þessa andúð arabríkja yfir sig með endalausum yfirgangi á Palestínumönnum og stuðningi þeirra við konugnsfjölskylduna í Saudi-Arabíu. Og það verður nú seint álitin lýðræðisstjórn eða frjálst samfélag sem Bandaríkjamenn eru endalaust að básúna. En þetta eru þeirra bestu vinir!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok