Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þeir voru mun lengur en 5 ár í Víetnam en samt fóru þeir heim með skottið á milli lappanna. Erlendur innrásarher nær ekki stjórn á landi þar sem almenningur er á móti þeim. Fræddu þig um mannkynssöguna! Þetta hefur sýnt sig aftur og aftur og þá er ég ekki bara að tala um á 20. öldina.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Koddu með tölurnar! En þá kemur í ljós að þetta eru tölur frá Bandaríkjamönnum! Er þeim treystandi til þess að greina satt og rétt frá miðað við reynsluna sem við höfum af þeim? Það er búið að taka mun skemmri tíma fyrir margar af smáþjóðum í Persaflóa að eignast mörgum sinnum meiri peninga en þetta stríð hefur kostað. Olíuauðlindirnar í Írak eru þær næstmestu í heiminum. Auk þess að skapa peninga þá skapa yfirráð yfir þeim mikil völd. Veistu hvernig heimsmarkaðsverð á olíu ákvarðast?

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Einmitt, þeir eru ekki ósigrandi en þeir hætta samt ekki yfirgangi sínum. Nú þegar er það öllum ljóst stríðið í Írak er tapað. Það er eins einfalt og það er að þú vinnur ekki skæruhernað. Þetta hefur sagan kennt okkur sem hafa vit og nennu á að lesa hana!

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Segjum að þeir ”steli olíunni“… Þá gætu þeir ekki einusinni náð að borga upp stríðið með henni fyrr en eftir rúmlega 50 ár…” Hvernig færðu þetta út? Heldurðu virkilega að þeir séu í frelsisstríði?

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Bandaríki Ameríku hafa leyfi til þess að eiga vopnin. Írak hefur það ekki.” Skuggi þetta er það barnalegasta og þröngsýnasta sem ég hef heyrt og er ekki svara vert. Þú ættir að skammast þín fyrir að skrifa jafn yfirgengilegar línur.

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
“Þann 29. nóvember 1947 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tillögu um skiptingu Palestínu í tvö ríki. Þá hófst bæði viljug og nauðug brottför Palestínuaraba úr landi sínu og hélt áfram allt fram til þess er vopnahléssamningar voru undirritaðir sumarið 1949” "Þegar lýst var yfir stofnun Ísraelsríkis [15. maí 1948]“ ruglaðist á ártölum þar sem ég var að skrifa þetta eftir minni. ”Þann 11. maí 1948 skrifaði hann (Ben Gúríón) í dagbók sína að hann hefði gefið skipun um að “eyða öllum...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já og hvaða þjóð býr milli Tígris og Efrat núna??? Írakar!! Einföldunarsinnarnir gætu kannski bara farið að kenna Írökum um þetta allt saman!! ;-) Hjartanlega sammála þér að menn skulu vita sínu viti ef þeir ætla að tjá sig um mannkynssöguna!

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Af hverju heldurðu að stríðið sé svona mikilvægt fyrir þá?? Olía = peningar og aftur peningar. Ekki til að frelsa neinn einasta mann undan oki annars. Segðu mér þá af hverju þeir voru ekki löngu búnir að koma Charles Taylor frá völdum í Líberíu? Landi sem var stofnað af bandarískum þrælum sem gefið hafði verið frelsi, Liberia = Liberty. Farðu nú að líta á þetta með þínum eigin augum, ekki hafa endalaust uppi þær réttlætingar sem stríðsherrarnir í Washington hafa uppi. Manstu hvað þeir sögðu...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Arabar hafa nefnilega ekki hafið öll þrjú stríðin gegn Ísrael. Strax 1947 eftir að Ísrael var stofnað var það fyrsta verk Ísraelsmanna að ráðast inní land Palestínumanna sem þeir áseildust. Árið 1967 réðust Ísraelsmenn inní Líbanon og hertóku þar hluta landsins sem þeir halda enn í dag. Þriðja stríðið er væntanlega það sem þú ert að nefna í dag og sú frelsisbarátta sem í gangi hefur verið í 20 ár og með mismiklum hléum. Það er að mínu mati fullkomlega skiljanlegt ef þú setur þig í þeirra...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég gerði söguverkefni í MH fyrir ca. tveimur árum síðan í félagi við annan mann um stríðið milli Íraks og Íran og í heimildaleitinni fundum við m.a. þetta. Nú man ég ekki nákvæmlega hvar við fundum þetta en það var m.a. í sögubókum og á netinu. Ef þú fræðir þig um stríðið milli þessara tveggja þjóða þá þarf engan snilling til þess að komast að þessari niðurstöðu, hvort sem þú sérð það svart á hvítu eða ekki. Og sú staðreynd að Bandaríkjamenn settu endalaust fjármagn og vopn í hendurnar á...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er eitt að segja mönnum að verið sé að plana að þróa glænýtt drápstól sem á að vera skilvirkara í drápunum heldur en fyrri, og svo að segja mönnum hvar þeir geyma sprengjurnar sínar. Það er ekkert sem réttlætir það þvílíka magn af kjarnorkuvopnum sem USA á né að menn ætli að þróa enn eitt gereyðingavopnið. Þeir virðast aldrei læra því að sjálfsögðu eiga þeir eftir að fá þetta beint í hausinn aftur einn góðann veðurdag!

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
í eðli sínu??? iðnaður stækkar ekki nema hann velti meiri peningum, hann hlýtur einfaldlega þeim einföldu efnahagslögmálum. Þú ert að berja hausnum í steininn vinur, hættu því, það hefur enginn gott af því!

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hvernig getur hann verið að stækka ef hann er að velta jafn miklu og í fyrra??? Svo held ég nú að aðgerðir íslenskra stjórnvalda sem eru að rústa hálendinu með virkjunarframkvæmdum, einmitt fyrir bandarískan álrisa, hafa meiri áhrif á ferðamannaiðnaðinn hér heldur en 11.september 2001!

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nei þú bara flaggar því svo mikið að maður getur ekki orða bundist. En þú ert greinilega með töluverða minnimáttarkennd gagnvart þeim sem hafa sterkar skoðanir. Svo er það náttúrulega út í hött að hljóma einsog rispuð plata með því að copy/paste allt sem ég skrifa!! Svo var það nú bara í fréttum í gær að ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi velti alveg jafnstórri fjárhæð í ár og hann gerði í fyrra! Ef hryðjuverkin 11.september myndu hafa einhver áhrif á ferðamannaiðnaðinn þá væri það örugglega...

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
bíddu bíddu Það fær ekki einn einasti lifandi maður utan hersins að sjá kjarnorkuvopn Bandaríkjamanna eða vita hvar þau eru staðsett! Eftirlitsstofnanir taka þá bara trúanlega!

Re: Bush....?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú ert náttúrulega bara algjör sauður!! Þetta er allt hárrétt sem kemur fram í þessari grein! Hver gefur Bandaríkjamönnum rétt til þess að segja að aðrir megi ekki eiga vopnin sem þeir svo sjálfir eru að flagga?? Áttum okkur á því að kjarnorkubúr Bandaríkjanna hefur að geyma fleiri sprengjur en allar aðrar þjóðir í heiminum ráða yfir! Og svo tilkynna þeir stoltir að nú ætli þeir að byrja að þróa nýtt gjöreyðingavopn. Þetta er svo mikil forheimska og þeir virðast aldrei læra neitt af...

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég tapaði allavega ekki krónu, það hefur þá helst verið Flugleiðir sem töpuðu. Heimurinn hefur nú séð verri kreppu en þú ert greinilega ekki það vel að þér í mannkynssögu 20.aldar að vita af því. Ertu ekki umburðrarlyndur? Ég tel mig vera það og er stoltur af því. Stundum þarf maður samt að segja stopp. Þó svo að ég þekki þig ekki neitt, og veit sosem ekkert hvort þú ert umburðarlyndur og elskulegur, þá eru margir hommar mjög svo elskulegir gagnvart fólki. En ef þú ætlar að bölvast út af...

Re: Bandaríkjastjórn verður að hætta

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
nákvæmlega!! Ég er búinn að vera að segja skoðun mína á Bandaríkjunum hérna: http://www.hugi.is/deiglan/greinar.php?grein_id =16342074 Það sem stendur uppúr þegar menn ræða um framferði Bandaríkjanna síðustu áratugi er eiginhagsmunasemi og lítilsvirðing fyrir menningu og lífsháttum sem eru öðruvísi en þeirra.

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað!!! Þetta ERU eiginhagsmunaseggir!! Komdu með dæmi um annað og ég skal vel hlusta. Það var nú ekki mikil kreppa hér á landi eftir 11.september…. Og þú ERT hommi, ekki satt?? Þetta eru engir fordómar í mer bara blákaldur sannleikur og ef þú meikar hann ekki, stingdu þá hausnum í sandinn einsog hinar 300 milljónirnar!!!

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Eg er nefnilega alls ekki að segja að okkar siðir séu hinir einu réttu, það er hins vegar víðtekin skoðun í Bandaríkjunum. Þeir álíta að þeirra menning og siðir séu hinir einu sem hafa rétt á sér og þeir sem eru þeim ekki sammála eru oft álitnir vera villimenn. Það sem ég er að reyna að benda á og gengur greinilega ekki of vel er endalaus yfirgangur þeirra í málefnum sem þeir engan rétt á að vera að skipta sér af. Um jólin 2001 var maður sem ég þekki í matarboði þar sem var bandarísk kona...

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
En dæmir maður ekki fólk af verkum þeirra og skoðunum? Nú er það þannig að fáir skólar í Bandaríkjunum njóta meiri virðingar almennings en stærstu herskólarnir. Almenningur styður herinn og það sem þeir gera, og þá skiptir í raun litlu máli orsökin fyrir því sem herinn er að gera. Ég sá hluta af Jay Leno í gær og þar kom þessi hermaður með einhverja medalíu sem hann hafði fengið. Ég reyndar gat ekki horft á þetta, fékk æluna upp í háls þegar Jay Leno tók á móti honum og sagði: “Thank you...

Re: Nú er sko komið nóg!

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sammála þér…þetta er miklu skemmtilegra lesefni!! Innilega til hamingju með tilvonandi erfingja og framtíðin greinilega brosir móti ykkur. Því miður er ég einn míns liðs núna þannig að ég geti ekki komið með svipaða sögu…:-(..en það stendur nú allt til bóta!! kv.guru

Re: Barinn til dauða af lögreglu

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Af hverju ætti að vera eitthvað mikið að mér ef ég óska óheilbrigðustu þjóð í heimi dauða. Ertu vel að þér í sögu Bandaríkjanna síðustu áratugi?? ég skal nefna nokkur dæmi sem styðja stoðum undir þessa skoðun mína… Bandaríkjamenn kappkostuðu að þróa kjarnorkusprengju sem síðan allir vísindamenn sem stóðu að henni sáu eftir að hafa gert. Bandaríkjamenn drápu 600.000 japani í hefnd fyrir árás á Pearl Harbour sem kostaði 2500 manns lífið!!! Öfgakennt! 1953-56 eru Bandaríkjamenn í tilgangslausu...

Re: Rómó Tónlist

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Bíddu veist þú eitthvað um þennan disk???? Alveg pottþétt ekki þar sem þú myndir þá ekki segja svona um hann!! Ég hugsa að allar kellingar fái æluna uppí hálsinn við að heyra feita svertingjann Barry White gaula… þúrt greinilega ekki á heimavelli þegar kemur að því að koma stelpum í rúmið!!

Re: vændi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
We live in a free world!! Mér finnst að vændi eigi að vera löglegt, það minnkar vald svokallaðra dólga, minnkar hættu á ýmsum sjúkdómum, minnkar hættuna á að þær sem selja sig séu beittar ofbeldi og skapar réttindi til handa þeim sem ákveða að selja sig. Ef vændi er löglegt þá skilst þá frá hinum svokölluðu undirheimum og þarf alls ekki að vera svo slæmt. Þetta er spurning út frá hvaða siðferðissjónarmiði við skoðum þetta. Eigum við að láta gamlar kreddur sem fylgja kristni og segja að þegar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok