Jebb, ég er sammála því. Ég er ekki sáttur með að Etherington sé að fara, ég sá til hans í nokkrum leikjum og í mínum huga var þetta framtíðarleikmaður félagsins. Les Ferdinand er sorglegur leikmaður. Eftir að hafa horft á hann klikka færum hvað eftir annað þá missti ég allt álit á honum og ég var mjög sáttur þegar að hann var seldur. Ég er mjööög ósáttur með söluna á Freund, þetta er snillingur og Þjóðverji. Það sem mér finnst vanta í liðið, það eru fleiri Þjóðverjar, með fleiri Þjóðverjum...