Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn “mér er alveg hrikalega illt í olnboganum ég held ég verði að fara til læknis.” Félaginn sagði: “Ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apóteki sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara þvagsýni í vélina og hún segir hvað þú átt að gera í því og það kostar bara 500 kall.” Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýnið í apótekið. Þegar hann var kominn þangað hellti hann því í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin fór að framkalla ýmis hljóð og fullt af ljósum blikkuðu. Eftir smá stund kom út prentaður miði sem á stóð "Þú ert með tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um hendina og þú ættir að vera orðinn betri eftir 2 vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa hversu mögnuð vélin væri og datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun ákvað hann að reyna.
Hann blandaði saman kranavatni, hundaskít úr hundinum sínum, þvagsýnum úr bæði konunni sinni og dóttur. Og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna.
Daginn eftir fór hann í apótekið, helti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan eftirfarandi greiningu… Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þínn er með orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing. Og hættu svo að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum.