Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gunna7fn
gunna7fn Notandi frá fornöld Kvenmaður
598 stig

Re: spoileraspurning????

í Gamanþættir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sammála doberman þessi undrskrift er pirrandi

Re: Buffy valin best kvenhasarhetjan

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Takk fyrir þetta. Mér finnst samt svo finndið að talað er um kynþokka í miðri kvennhetju grein. Það er ekki alltaf gert þegar um karlmenn eru að ræða. En frábært að Buffy okkar þykjir best af öllum

Re: Sky One

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég á líka í vandræðum með sky one og stöðinn dettur alltaf út á þeim dögum sem ég er áhveðin í að horfa á eitthvað. Algjörlega óþolandi. en hún er alltaf inni þegar´verið er að sína fölbragðaglímu.

Re: Björgum Buffy!!!

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Búin að kjósa, endilega halda þáttnum inni

Re: Hvaða þáttur?

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það er frábært þáttur, ein af þessum ofurfyndum Þáttum.

Re: Hverjum finnst 6.serían vera sú langbesta til þessa?

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Mér finnst þessir þættir alltaf vera betri og betri, ég er búin að horfa núna í maraþonni á fyrstu 3 seríurnar. Ég get ekki beðið eftri að byrja að horfa á fjórðu og fimmtu aftur. En ég er sammála 6 serían er frábær það sem komið er af henni. Ég er en að bíða eftir hver verður aðal vondikallin í seríunni. Ég verð að viðurkenna að ég var mjög ánægð með það þegar Willow áttaði sig á því hversu langt hún var komin. Vona bara að hún haldi áfram á þessari braut. Buffy /Spike sambandið er líka...

Re: Meiri Friends!!

í Gamanþættir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Kannski vilja þeir hætta á toppnum eins og Seinfeld. Mér finnst þessi þættir hrein snild, en ég yrði fúl ef þetta væri orðið þreitt og leiðinlegt. Eins og oft vil verða með svona þáttarraðir. En þeim hefur tekist að halda þessu fersku og skemmmtilegu til þessa. Svo er það annað, það er ekki víst að leikararnir vili festast í þessum þáttum. Ég væri alveg til í fleiri en 8 þáttarraðir af friends en ekki misheppnaða þáttaraðir barra eins og friends á að sér að vera, hrein snild. kveðja Gunna Sjöfn

Re: Angel: Doyle.... Af hverju?!?!?!

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Joss sagði þegar hann talaði inn á fyrsta þáttinn í Buffy á sison 1 að hann vildi láta Jessy vin Xanders vera í upphaflega treilernum, til að láta fólki finnast vænt um hann og koma því svo á óvart með því að drepa hann en hann hafði ekki haft hvorki tíma né fjármagn til að gera tvö byrjunar stef. Síðan sagði hann við gerðum þetta seinna með Angel. Fólki fannst þetta ekki fyndi og varð frekar fúlt. Svo kannski var þetta ekki svo siðug hugmynd eftir allt saman. Svo ég held að þetta hafi verið...

Re: Buffy S06E07 - The Musical - No spoiler

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
það lag sem mest hefur setið í hausnum á mér er langið hennar Buffyar, þegar hún er að sigja um lífið. Man ekki hvað það heitir, annars finnst mér langið hans Spikes flottast

Re: smashed (spoiler)

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég er samt enn í sjokki yfir hverju Spike komsta að með Buffy, ég hlakka svo til að sjá hvað …………… Spoler………………..hún er. Það kom í ljós að hún er ekki fullkomlega mennsk, þar sem hann getur slegist við hana án þess að fá sársauka. Mér fannst það meira sjokk heldur en hvað þau gerðu eftir það. Og já það var augljóst hvað þau voru að gera. Joss rúllar, ég bjóst ekki við þessu með Buffy. Maðurinn er snillingur í því að koma manni á óvart

Re: Buffy/Angel campaign

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Einn besti Angel þátturinn er þegar Buffy kemur í heimskókn, þ.e. fyrsta heimskóknin hennar. Persólulega á ég eftir að skana þeirra smá, en get alveg lifað án þess.

Re: Buffy S06E07 - The Musical - No spoiler

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Nei það eru fleiri sem hafa þessi lög föst í hausnum á sér. Ég syng þetta allan sólarhringinn. Ég á bara eftir að horfa á þennan þátt svona 100 x í viðbót (a.m.k.)

Re: Meira spjall með soldið af spoilerum!!

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Sammála, þessi þáttur er snild. Mér fannst langið hans Spike standa uppúr. Hefur ekkert með það að gera að mér finnst hann skemmtilegastur. Sammála loulou um að Tara var engill í þættinum, hún var líka í svo flottum kjól. Ég get ekki beðið eftir næsta þætti og sjá hvað verður úr þessu öllu. Þessi þáttu var bæði konfekt fyrir augun og eyrun.

Re: Ný auglýsing!!

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég held að þau séu rugluð. Hefur einhver annar sjómvarpsþáttu orðið af söngleik einn þátt? Eða er þetta í fyrsta skiptið. Ég hef gaman af söngva og dansa myndum svo að ég hlakka til að sjá þetta. Þetta á ábygilega eftir að vera fynndið

Re: Once more with feeling (spoiler f. 6. þáttaröð)

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þetta verður örugglega frábært, hlakka til að sjá þennan þátt

Re: Varðandi Borg

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mér fannst season 7 einnar verst, reyndar voru fyrstu tvö verri. Ég varð fyrir vonbryggðum með season 7 kveðja gunna7fn

Re: Eldri strákar og ungar vitlausar stelpur

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Við viljum stráka sem fíla okkur eins og við erum. Allveg eins og þið viljið finna stelpu sem er ánægð með hvernig þið eruð. Persónulega er ég að leita af einhverjum sem er góður við mig og finnst ég vera fallegasta og skemmtilegast kona í heimi. Ég veit vel að ég er það ekki. En þegar þú finnur maka sem á við þig, þá verður hann/hún fallegasti einstaklingur í heimi og betir með hverjum deginum sem líður. Ég þekki þetta ekki af persónulegri reynslu, því miður. En ég sé þetta hjá vinkonum...

Re: Eldri strákar og ungar vitlausar stelpur

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mér finnst grátlegt að hugsa til þess að einhver getur farið með aðra mannenskju eins og þessi maður gerði við divaa. Byrja á að brjóta hana niður og niðulægjana á alla hugsanlega vegu. Að upplifa eitthvað svona ungur, þá getur sá aðili haldið að þetta sé ást. Þó að innst inni viti hún/hann betur. Til að losa sig úr svona víta hring þar aðilinn sem lendir í svona niðurbroti að fyrir gefa sjálfum sér. Horfast í augu við orðin hlut og fyrirgefa sér. Það er mun erfiðar en það hljómar. Best er...

Re: FarScape, flottir þættir!

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég get ekki sagt að síson tvö sé slæt, það eru nokkrir þættir þar sem eru hreyn snild. Eins og “Out of their minds”, þar sem meðlimirnir skipta um líkama. Ekkert smá fyndin þáttur. Einnig ‘Look at the princess’ þríþáttungurinn! Jú, kannski er einn og einn þáttur sem er ekki hrein snild en sýnið mér þáttarraðir þar sem hver og ein þáttur er stórkostlegur. Það er ekki hægt. Ég mæli hiklaust með þessum þáttum. Persónulega get ég ekki beðið eftir að fá næsta skammt. Ég er búin að horfa á fyrsta...

Re: Dagbók kærustuparsins

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þetta er augljóslega brandari. En brandarar eru fynndir venga þess að við sjáum eitthvað sem við þekkjum í þeim. Ég er ekki að segja að svona hugsi stelpur og strákar. Minn fyrrverandi sagði mér þennan brandar og hann trúði honum. Kannski vengan þess að sabandið okkar var ekki gott. Ég hafði áhyggur af því og hann var eins og þessi gaur. Sem dæmi um þetta þá var það versta sem kom fyrir sambandi okkar var að sjá hellisbúan. Það var eins og við höðum farið á námskeið um heilagan sannleika. Og...

Re: Trúlofun

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Systir mín trúlofaði sig eftir 1 mánaðar samband. Hún og maðurinn hennar (þau eru gift í dag) eignuðust dóttur áður en þau náðu að vara saman í eitt ár. Þau giftu sig eftir að hafa verið saman í eitt og háflft ár. Þau eru mjög hamingju söm í dag og sjá ekki sólin fyrir hvort öðru (það eru 4 ár síðan þau byrjuð saman) Ég hinsvegar trúlofaði mig eftir að hafa verið í sambandi við kærasta minn í tæp 2 ár. Við giftum okkur einu og hálfu áru seinna. Eftir að hafa verið gift í 3 ár (saman í rúm...

Re: American Pie 2, spoiler

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 7 mánuðum
mér fannst þessi mynd mjög fynndin. Ég bjóst við sömu vitleysunni og í mynd eitt. Ef eitthvað var fannst mér þessi betri. Ég skil ekki fólk sem fer á svona myndir og býst við listaverki eða gáfulegum söguþráð. Þetta er vitleysa sem fjallar um vandræðilegar aðstæður. Sem er fynndið. Jú hún var fyrir sjánleg en samt sem áður hef ég sjaldan hlegið jafn mikið í bíó. Reyndar hlóg ég líka mikið af Jay and silent Bob. Stjörnu gjöf gæfi ég henni 3 af 5. Þar sem 3 er góð mynd. 4 standa fyrir mjög góð...

Re: Ráðlaus gunga

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ef partíð virkar ekki gætur dregið vinkonu þína í bíó og beðið hana að taka vinkonu sína með sér. Það er ekki hægt að tala mikið í bíó, en það koma alltaf hlé(því ver og miður). Þá er hægt að fara fram og tala saman. Eftir það gætur hringt í hana. Það er auðveldara að hringa eftir að hafa hitt hana 2 x. En annars er alltaf gaman ef einhver hringir í mann. Ég veit að ég mundi ekki taka því illa ef einhver hringdi í mig. Það er ekkert af því að hringja í hana beint. Bara spurnig um hvort að þú...

Re: FarScape, flottir þættir!

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Farscape eru snilldar þættir á bara eftir að horfa á fjóra þætti úr Öðru sísoni eða seinasta pakkan á DVD. Þegar ég fæ þættina horfi ég á þá á einum degi. Sama hversu mikið er að gera hjá mér finn ég mér alltaf tíma til að horfa á þættina. Síðan er smá svekt yfir því að eiga enga þætti eftir. Jhon er svo fyndin karakter og ég elska sambandi milli hans og Eren. Frábæri þættir og mæli hiklaust með þeim. Endileg fá meira sci fi í ísleku sjónvarpi. Það væri líka hugmynd um að hafa sci fi sem...

Re: Hljóð/óhljóð úr Angel

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég hlakka til að sjá þennan þátt, verður áræðilega mjög furðulegur. þveistu hversu langt inn í seríuna þessi þáttur verðu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok