Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gufa
gufa Notandi síðan fyrir 18 árum, 5 mánuðum 738 stig

blár (3 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 7 mánuðum
angurvær vindspegill við vindinn hjalar heldur að himinn blár dregill liggi beint til óvissu salar brautin er breið og hrein bylgjast við roðadregin himinn stjörnurnar þúsund sem ein senda þér afl í framtíðar heiminn dæmalausar frostbylgjur bláan dulúðlegan himinn lýsa hendingar og þungar dylgjur háttsettir hattakarlar bísa

sár (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Í hitamistrinu hangir blá logn Í morgun voru grastár á balanum og himinninn enn grár Svo kemur suð suðaustan áttin með gula sveipi um loftið Reykjavík verður eins og Peking í mollu mengunar borgarstjórinn rekur Ólöfu Guðnýu. í mistrinu er grastár og gulur sveipur mollu í loftinu sár Ég veit ekki hvort lífið vill veita mér mjólk En hún elur af sér fólk Hver hefur gefið henni vald til að drottna og deyða eiða, á endanum verðum við skólp Sumir skorpna ungir Aðrir deyja feitir og gamlir...

hlær (5 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 10 mánuðum
fossa ós Þú ert ástæða minninga minna lifandi morgun ljós leikur margæðra glæða gjöful glit að finna við fegursta fossa ós glymur Glymur í fjöllum með glampandi sól og glimrandi köllum Hér er í fjallkonu kjól fegursta fóstra og skjól. mjúk þegar hún strauk vanga þinn logaði lífsins á höndin mjúk af þrá. lækur Lækur orða þinna er vorið sem rennur undan ís vetrarins verður sumar lóan syngur bí bí dirðindí Orðin þín renna um æðar jarðar rauði lækur hlær lækurinn liðar harpan hlær að ástinni sem...

Hlíð (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum
Hlíð Vorið kemur vaknar líf í ytri hlíð draumur nemur innri strengi frjálsa drengi brjóstið lemur hjartað mitt döggin merlar sólin mín dropar drjúpa maríuerla bak við ský. Bí bí híí i Krí krrí karí.

Vaknar (tilraunir) (4 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Vaknar vatnadís vatna. Vígur vina. Verður votur vindur vona. Volaða víf vegur veður vá. Vanadís vís. Vaknar.

Kalt (5 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Kalt Í paradís dansar álfadís við snjóstjörnublik og mánaljós á ís snjólokkar í logninu leggjast á hárið sem glitrar svo skært glitskýið fagurt en kalt vertu hjá mér álfadís. Máninn fer bak við ský myndin frís. Einn er ég staddur við dimman frosin ís.

barn (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ef ég hefði skugga árinnar gæti ég skautað á braut Ég vildi að fætur mínir gætu flogið burt Það er hætt að snjóa og allt er grænt Þeir saga grænu grenitrén boða von og frið Barnið mitt er farið Ef áin væri enn þá gæti ég skautað burt Kenndu fótum mínum að fljúga yfir gljúfrið þar sem áinn rann Barninu í mér að lifa við náttúrunnar rann Brotinn skuggi í ljósaflóði peninga glampar í rúðu Barnið er í þér Það eingin annar sér Við frosin glugga brotið gler eitt er.

Frosið ljós (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Flögra um heiminn fagurgalinn flörtrandi Fullt hús af sorgum háværum orgum Kom heim Við erum ein ljósið er frosið sitjum á stein stjarnan á himninum kom heim Rauðleit nef á glugga úr andlitum skein frostrós Augun, gul græn, brún, blá þau eiga jú föt flatan fínan frosin skjá fagra stjörnu að líta á Sorgin er þrá.

kúri (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég er fuglinn sem eingin sakanar með litla vængi Í algeiminn hvarf út úr myndinni með virka vængi Ég er fuglinn sem einn vaknar með lítinn mat Kúri á grein með stirða vængi langar heim. Ég er fuglinn sem sólin sækir blæs í líf og vindurinn feykir heim til þín Ég er fuglinn sem syngur Vorljóð að vetri vina mín.

úúuuu tikk takk tikk tik uÚ (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
23.07.07. Lestin brunar fram hjá mér Lestin brunar heim til þín Lestin brunar bú, bú, bú Tikka, takka, tikk, tikka, takka tikk tikkk Ú, ú uu Taktu hana heim til mín Lestin hún fer hring eftir hring elsku besta hjartað mitt komdu núna við hjá mér Ú ú ú ég stekk út og gæti að þér gríp og kyssi þig Ekki fara fljótt frá mér því lestin fer annan og annan hring ég kveð þig kæra seinna í kvöld þegar þú ferð, færðu hatt og blóm frá mér koss á vanga bæ, bæ, bæ Lestin brunar burt frá mér brunar,...

bekkur (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 6 mánuðum
16.10.07. Sólin sest hjá mér sæt á bekk í borgini við lítinn rugguhest Sem lindin rennur tær lækur við fætur okkar Sæt er sólin í borginni á haustin Bragurinn þinn á við minn. Á bekknum hjúrum við okkur fram í myrkur. Sæl förum frá læknum í lindina hlýju við kertaljós. Sofum saman.

ruddi (2 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Blá vængjaðir haustfuglar trúa því að alltof mikið sé án frelsis Ógnin er takmörk ránfuglanna á silfruðum sprengiþotum Frelsi drottnara er tilbúin vitfirring án fegurðar. Rjúpurnar eru skotnar á haustin Spóinn er skotinn í öðru landi eftir frjálst flug í þúsund kílómetra. Blávængjaður ruddi ófrelsis er í vestri og austri. Fátækt fólk er sundrað.

Regn í Reykjavík (2 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 7 mánuðum
08.09.07 Ég geng um Reykjavík í góðu skapi glampans í rigningu án regnhlífar í ljósi lampans í rauðri regnúlpu í svörtum skóhlífum með hvítri stúlku með græna hanska með gleraugu með hatt í hvítum stígvélum í blárri úlpu renn vot glöð á leiðinni heim.

gola (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 7 mánuðum
16.08.07. Finndu goluna hlýja sem fer norður yfir fjöllin leika frjálst um vanga þér og háls Andann frá mér hríslast notalega eins og nefin andi saman hugir verði eitt. Lyktin sem næstum hefur verið eitt ljóslifandi er nú hjá þér. Ég finn goluna að norðan frá þér. Hún er eins og sunnan sól í skjólinu hjá mér. Mig dreymir um líf sem bærist um í fanginu á mér Silki mjúk er húfan þín og fagurlaga háls. Það er bara eitt sem kemur um þennan ás. Það er hugmynd golunnar um hvern hún vill

Táta (3 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 8 mánuðum
14.02,07. Læðist lítill stúfur fram leyndin sýnist snúinn Stakan stein hann fann sterkan fúinn lúinn. Trítlar lítil táta um tilviljun sá í leyni Stökk hún strákum litlum burt frá snúnum eini. Leit við lundinn fann frakkan lítinn stúf Stefndi stökk á hann stúlkan reyndist ljúf. Veltust vör í lyngi vilt í lágri lautu Leið að einu mengi eið til ennis lutu. Trítlar táta. Leit ljúf stúf. Villt Veltist. Laut leið til ennis eiðs.

Á háum austur himni (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Að fljúga á vit fyrir alla Við dagsbrún dagsbirtan dvínar Til sjálfra langanna að betra lífi Hennar hugur alltaf var sem ljúfur blær á fögru sumarkvöldi. Nú er á háum austur himni stjarna skær Kveiki þetta hugar mynni Hugurinn beindist alltaf að því sem heimurinn vildi og ég skildi Nú við farin veg heyrnarrótin sér að foringinn vildi öllum vel.

Hnarreist (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 11 mánuðum
03.02.04. Sóley beygir stilk sinn mót suðri opnar gula knúppa sína sólin skín skært. Sem í hendingu heyrist hnjúka þeyr. Hún reisir sig hnarreist og brosir. Það er ljúfur blessaður blærinn Suðandi fluga fær sér hunang og frjó vei mér er borgið. Brosandi blíð lokar hún krónunni kvöldroðinn leggst yfir kyrrðin er eilífðin .

Glóa hjörtu (2 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 12 mánuðum
18.01.04 Hugur og heiður himinn vildirðu vera hér Allt er svo gott þar inni sólskyn í hjarta þér Hjörtun þar glóa saman hrein og hvít sem ský Í grasinu hjörtun fundust finnirðu frið í því. Sólin er sæl í sinni sindrar nú hugur minn Hefurðu hugleitt það bjarta björg ber við himininn.

Einlæg (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum
15.03.04. Hamingju hefur þú innst í hjarta þér Hugmynd, von og trú leynist í sjálfri sér Hamingjan heldur mér innst í huga hér Hefurðu reynt hana að fanga þá flýgur úr faðmi þér Hamingjan hendir hugann þegar í skyndi hér hamingjan flýgur einlæg einkum þegar engin e

Litir (0 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum
Myrkrið er þegar sólin felur sig á bak við skýin Martröðin er í koddanum þar er lítið pláss Litir skýanna eru fagrir flestir gulir, hvítir, rauðir Stundum fjólubláir og grænir Þeir eru líka dökkir og blautir Ljósið bergmálar litina og skuggana Mér líður vel í endurvarpi litanna. Aðvörun sólarlagsins er fyrir bláan morgun Rauður röðull rís við sólarupprás blár máninn víkur.

Hálsmjó (0 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 1 mánuði
11.02. 04. Ljósastaur með Kína hatt brosir neon bláu. Bláeygð en ekki skásett. Aðrir hanga yfir með gula skeifu upp á við. Hálsmjó há og tignarleg með skásett augu. Hrafninn sest á þann háa. Snjótittlingar kroppa manna korn á bletti.

Ullarljós (2 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 1 mánuði
08.01.07 Ullarljós Á nátthimni hugurinn býr hjá nútíma manni sem heldur að himininn verði alltaf jafn skýr þó á jörðinni brenni jafnan eldur Manninum miklast um sig munaðar loftinu heldur Leiðinda nöldur, lofthjúp og þig Það ert þú sem sprotanum veldur Hugurinn býr haldlaus en skýr undrandi með hendur á lofti Ljósáran oftast ljær hlýr ullarljós, óráðinn óttans lofi

Tilraunir (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Tár Tilbrigði tilfinninga tendrandi tauga. Tíðaranda tindanna tilvist tilfinninga tauma. Tómlæti tungnanna tónlistar tungl Tignarlegt tilbrigði tóna. Tára taumur. ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Sóley Blómið í brekunni bíður vinalegt. vorsins varma Veturinn líður lítið laufgað blóm í jakkalafi ljós blátt Gleym mér ey í bala brekkunnar bíður ein. Sóley mót suðri syngur við svalan sæ bæ, bæ. hæ Gul á grænum stilk glaðværð í bæ sóley mót æ.

Silki (4 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 2 mánuðum
12.02.07. Brúnn líkami barns sveipað rauðu silki baráttan hans verður að þungum kekki í huga þess sem ekki fer Fingrafarið í sálu barns er rekið í flekki. Eingin vill flekkað mannorð Dómarinn verst en barnið ekki Morgun fréttirnar eru ekki hlutlausar kvöldfréttirnar ekki heldur þær eru framreiddar af fólki með fortíð og tengsl. Rauða silkið er þunnt Kökkurinn þungur. Góður tími kemur líklega ekki Bláa silkið vill það ekki.

Dyr (0 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 3 mánuðum
28.01.07 Dyr Lokast þá allar dyr og mennirnir flýja til fjalla því öxin er keyrð í þig þú fellur og fellur sem blý. Á ógnar hraða út í algeyminn allt sem við gerðum var hjóm eitt og ský. Þrautir hugans gagntóku allt við reyndum að kalla og kalla reyndum að skilja þig á ný. Þú varðst að falla í sjálfs þíns djúpa dý. Nú sérðu okkur öll á ný að ofan litrík með góðan huga. Alla þá sem þurfa hjálp og frið á ný. Sjálfið byggir nú hugans brýr.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok