blár angurvær vindspegill
við vindinn hjalar
heldur að himinn blár dregill
liggi beint til óvissu salar

brautin er breið og hrein
bylgjast við roðadregin himinn
stjörnurnar þúsund sem ein
senda þér afl í framtíðar heiminn

dæmalausar frostbylgjur
bláan dulúðlegan himinn lýsa
hendingar og þungar dylgjur
háttsettir hattakarlar bísa