hlær fossa ós

Þú ert ástæða
minninga minna
lifandi morgun ljós
leikur margæðra glæða

gjöful glit að finna
við fegursta fossa ós

glymur

Glymur í fjöllum
með glampandi sól
og glimrandi köllum
Hér er í fjallkonu kjól
fegursta fóstra og skjól.


mjúk

þegar hún
strauk vanga þinn
logaði lífsins á
höndin mjúk af þrá.

lækur

Lækur orða þinna
er vorið
sem rennur undan ís
vetrarins
verður sumar
lóan syngur
bí bí dirðindí
Orðin þín renna um æðar jarðar
rauði lækur

hlær

lækurinn liðar
harpan hlær
að ástinni sem tifar
hjá vorfuglum tæ