Blá vængjaðir haustfuglar
trúa því
að alltof mikið sé
án frelsis
Ógnin er
takmörk ránfuglanna
á silfruðum
sprengiþotum
Frelsi drottnara
er tilbúin
vitfirring
án fegurðar.
Rjúpurnar eru
skotnar á haustin
Spóinn er skotinn
í öðru landi
eftir frjálst flug
í þúsund kílómetra.
Blávængjaður ruddi
ófrelsis
er í vestri og austri.
Fátækt fólk
er sundrað.