Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gettuhver
gettuhver Notandi frá fornöld 114 stig

KS, Leiknir R og Víkingur Ó (30 álit)

í Manager leikir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Fyrst vil ég byrja á að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt að mörkum til að safna gögnum fyrir FM 2005. Til að fá það á tilfinninguna að maður sé í alvöru að stjórna liðum þá þurfa upplýsingarnar um leikmennina að vera nokkuð réttar. Nú eru komin góð mynd á á liðin úrvals og 1. deild, þökk sé áhugamönnum um land allt. En nú er svo komið að á næsta tímabili koma tvö ný lið upp í 1. deildina og nú eru þrjú lið sem koma til greina, KS, Leiknir R og Víkingur Ó. Því miður eru flestar upplýsingar...

Loksins! (19 álit)

í Manager leikir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja félagar Nú er loksins komið að því að við fáum tækifæri til að gera Aftureldingu að deildarmeisturum og Skagamenn að Evrópumeisturum. Við mikinn fögnuð tölvuleikjafíkla um allan heim verður verður íslenski boltinn loksins með í Football Manager 2005. En….!!! NÚ VANTAR AÐ LEGGJA LOKAHÖND Á VERKIÐ!!! og til þess vantar mig upplýsingar frá sem flestum hugurum sem telja sig hafa eitthvað vit á íslenskum bolta og leikmönnum. Gerið lista yfir leikmenn í ykkar liði/liðum og skrifið kosti...

Aðeins fyrir CM-fíkla! (15 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 1 mánuði
Gætir þú hugsað þér vinnu þar sem þú færð alls engin laun? Þarft að vinna á öllum tímum sólarhringsins í langan tíma og þarft sjálfur að leggja til vinnuaðstöðu og tölvubúnað? Alveg sama hvað þú leggur þig fram um að gera vel, það eru alltaf einhverjir besservisserar að gagnrýna? Og síðast en ekki síst… að öll þessi vinna skili svo engum árangri því að einhverjir tölvukallar í London stóðu sig ekki í stykkinu? Orðinn spenntur…? Lestu þá áfram… Ef þessar starfsaðstæður hljóma heillandi, þá...

Helstu nýjungar í Football Manager 2005 (36 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Football Manager 2005 Helstu nýjungar Nýtt notendaviðmót Viðmótið í Football Manager verður ólíkt öllu því sem áður hefur komið fram. Flakk á milli glugga verður einfaldara, þar sem kemur fram hvaða upplýsingar er um að ræða og hvernig er hægt að nálgast skyldar upplýsingar. Samræmi milli einstakra hluta leiksins verður meira en áður hefur þekkst: flokkun leikmanna og “filtering” verða virkari á öllum stigum leiksins. Hægt verður að nota tvo glugga í einu og auðveldara verður að breyta...

Leiðir skilja hjá Sports Interactive og Eidos (11 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Í dag kom tilkynning frá Sports Interactive og Eidos sem hafa í sameiningu séð um framleiðslu og dreifingu á Championship Manager síðan 1995 um að skilnaður væri yfirvofandi. Hingað til hefur SI séð um grunnvinnu varðandi leikinn, safnað gögnum, séð um forritun og og prófanir meðan Eidos hefur séð um framleiðslu og dreifingu. Eidos á nafnið “Championship Manager” meðan SI á gagnagrunninn, leikvélina og alla foritunarkóðana sem gera leikinn eins og hann er í dag. Þessi “skilnaður” verður til...

Hættur við að hætta (12 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það tilkynnist hér með að head-researcher staðan hér á Íslandi er því miður ekki lengur laus til umsóknar! Eftir miklar vangaveltur og ítarlega sálarskoðun(soul-searching heitir það víst á ensku) hafði ég samband við Mark Woodger hjá SI og spurðist fyrir um stöðuna, hvort búið væri að ráða í hana eða gera aðrar ráðstafanir. Woodg tilkynnti mér að umsóknir hefðu borist og að sumar þeirra litu vel út en að þar sem ég hefði reynsluna og hefði staðið mig vel þá væri mér velkomið að halda...

Hættur sem Head-researcher á Íslandi (14 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Eins og komið hefur fram er staða Head-Researcher á Íslandi laus. Ég hef undanfarin 2 ár sinnt þessari stöðu en vegna mikilla anna næstu vetur vegna háskólanáms treysti ég mér ekki lengur til að sinna starfinu sem skyldi. Þið sem hafið áhuga á þessu starfi endilega hafið samband við SIgames því þetta er skemmtilegt og spennandi starf þar sem auðvelt er að sameina tvær þráhyggjur sem oftar en ekki fylgjast að, tölvur og fótbolta. Þó þið teljið ykkur ekki hafa það sem til þarf, þá er enginn...

Loksins, loksins!!! Ísland með í CM!!! (66 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum
Jæja, CM spilarar og fíklar!!!! Nú er það orðið staðfest, Ísland verður með í CM4 sem kemur út í haust. Í fyrstu verða a.m.k. efstu tvær deildirnar og í framhaldinu, vonandi alveg niður í 3. deild. Til þess að allar upplýsingar séu nákvæmar, þá vantar áhugasama aðila til að taka saman upplýsingar um lið og leikmenn. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni, geta sent póst á snabbi@isholf.is, þar þarf að koma fram hvar á landinu þið eruð og hvaða liðum þið eruð tilbúnir að safna...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok