Fyrst vil ég byrja á að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt að mörkum til að safna gögnum fyrir FM 2005. Til að fá það á tilfinninguna að maður sé í alvöru að stjórna liðum þá þurfa upplýsingarnar um leikmennina að vera nokkuð réttar.

Nú eru komin góð mynd á á liðin úrvals og 1. deild, þökk sé áhugamönnum um land allt. En nú er svo komið að á næsta tímabili koma tvö ný lið upp í 1. deildina og nú eru þrjú lið sem koma til greina, KS, Leiknir R og Víkingur Ó. Því miður eru flestar upplýsingar sem ég hef um þessi lið komin á aldur og þær verður að endurnýja sem fyrst. Ef einhverjir Siglfirðingar, Breiðhyltingar eða Ólsarar lesa þessa grein og telja sig þekkja til í þessum liðum og eru tilbúnir að setja saman stuttan lista yfir leikmenn, þá væri gott að fá frá þeim póst á snabbi@isholf.is

Áfram ÍA!!!!