Jæja félagar

Nú er loksins komið að því að við fáum tækifæri til að gera Aftureldingu að deildarmeisturum og Skagamenn að Evrópumeisturum. Við mikinn fögnuð tölvuleikjafíkla um allan heim verður verður íslenski boltinn loksins með í Football Manager 2005.
En….!!!
NÚ VANTAR AÐ LEGGJA LOKAHÖND Á VERKIÐ!!!
og til þess vantar mig upplýsingar frá sem flestum hugurum sem telja sig hafa eitthvað vit á íslenskum bolta og leikmönnum.
Gerið lista yfir leikmenn í ykkar liði/liðum og skrifið kosti þeirra og galla og sendið á mig á snabbi@isholf.is
Mig vantar þessar upplýsingar fyrir 15. september og ÞVÍ MEIRA ÞVÍ BETRA!!!!!!!

ÁFRAM ÍSLAND!!!