binnibinni: Fyrir ekki svo mörgum árum árum voru það kallaðar “öfgar” að vilja frjálst útvarp og sjónvarp, bjórsölu, lengri opnunartíma verslana, einkarekna banka, frjáls gjaldeyrisviðskipti, hömluleysi á inn- og útflutning og svona mætti lengi telja. Það munu alltaf einhverjir kalla baráttuna fyrir minnkandi ríkisvaldi og auknu frelsi “öfgar”, og við kvörtum ekki því bæði þeir sem berjast og þeir sem kvarta munu njóta þessa aukna frelsis í framtíðinni.