Ég er alveg sammála þér með myndina The Thing. Svo eru líka Scarface og The Fly dæmi um góðar endurgerðir. Ég var bara að hugsa af hverju sumar endurgerðir heppnast vel, á meðan margar aðrar klúðrast. Mér finnst t.d. léleg hugmynd að endurgera mynd eins og Psycho, þar sem það er náttúrulega mjög ólíklegt að hún toppi forverann.