Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka rúnt í þessu tæki hér um daginn og langaði aðeins að segja frá því. Við vorum fjórir vaskir drengir sem sátu í bílnum og því næg aukaþyngd! Mér fannst aðstaða ökumanns mjög fín, sætin voru stíf en héldu manni vel á sínum stað. Ég sat síðar í aftursætinu og fór vel um tvo í því enda ekki gert ráð fyrir fleirum. Kúpplingin var mjög létt, of létt fyrir minn smekk, en eflaust hentugt ef menn ætla að lána mömmu bílinn! Það var hins vegar merkilega...