Sumir spila fótbolta og eyða fullt af peningum í allskonar dót, skó, markmannshanska, bolta ofl. Sumir tefla skák og eyða fullt af tíma og peningum í að fara í skáktíma og á mót ofl. Sumir spila á hljóðfæri, eyða fullt af peningum í gítara (eða annað), magnara, og allskonar dót. Sumir eru áhugamenn um tölvur (eins og ég :P) og eyða fullt af peningum í að uppfæra tölvuna eða kaupa sér leiki/hugbúnað. Afhverju megum við þá ekki eyða tíma og peningum í Warhammer? Er þetta ekki bara annað tómstundagaman?