MH battlið...úrslit Jæja nú er MH battlið búið og var það frábært og bíð ég í ofvæni eftir næsta en snúum okkar að þessu(geri eftir minni).
Keppendur voru 9 talsins og voru tveir seinastu skráu látnir keppa um sæti í átta mannaúrslitum.

Fyrsta Battl(um sæti)
Mælginn og Ablaze
Skemmtilegt battl þó að það hafi verið unpro(fann ekkert betra orð)

8 manna úrslit
Ablaze vs Marlon
Marlon vann þetta örugglega en Ablaze á heiður skilið, lang yngstur og stóð sig mjög vel.

Dabbi vs Jóel…Jóel chokeaði og Dabbi vann öruggt

Axel vs Gunnar Maris
Axel vann Gunna, mér fannst Gunni ekkert leggja sig fram við þetta.

Ingvar vs Evilmind
Ingvar var í frábæru stuði í þessu battli og vann Evilmind þónokkuð öruggt enda eru fáir sem geta unnið Ingvar þegar hann er svona stuði.

Undanúrslit

Marlon vs Axel
Marlon vann Axel, þetta battl fór útí aukalotu sem var skrítið að mínu mati þar sem Axel var að mínu mati búinn að vinna.

Ingvar vs Dabbi
Ingvar vann þó að hann hafi ekki verið eins góður og á móti Evilmind, það sem mér fannst áberandi með Dabba var að hann virtist varla vera battla frekar að freestyle-a fyrir crow-ið, mjög fáar punchlínur hjá honum á þessu battli

3 sæti

Dabbi vs Axel
Dabbi vann á einhvern furulegan hátt.

Úrslit

Ingvar vs Marlon
Ingvar vann þetta í aukalotu sem þurfti ekki að mínu mati, það átti að dæma Marlon úr keppni vegna þess að hann braut reglur, þar að segja mátti ekki snerta andstæðing(tekið skýrt fram fyrir þetta battl) og það var það fyrsta sem hann gerði, frábært battl engu að síður.