Mér finnst að allir mættu ráða í samráði við foreldra þegar farið er að læra þriðja tungumálið í grunnskólum, hvort þeir vilji læra sænsku, norksu, dönsku eða hvað það nú er af Norðurlandatungumálunum. Sjálfri finnst mér ógeðslega leiðinlegt að læra dönsku, ég get varla lýst andúð minni á að ‘læra’ hana, en ekki að ‘kunna’ hana. Það finnst engum slæmt að geta tjáð sig óheftur í öðru landi og annari menningu. Ég á til dæmis ættingja bæði í svíþjóð og danmörku en ég vil frekar læra dönsku. Og...