Stórt, hvítt herbergi með gulum gluggakörmum.

Sígrænt lauftré með könglum.

Herra Ísland sem heitir Ljótur.

Rigning á brúðkaupsdaginn.

Ljóti andarunginn sem er ekki svanur.

Milljónamærings þakíbúð með bergfléttu yfir gluggann.

Planta án grænukorna.

Heilbrigður maður á Klepp.

Moldug höfuðkúpa fornleifafræðings.

Kaldhæðni.

Kaldhæðni.

Kaldhæðni.
Skreytum hús með greinum grænum,