*Klikk*
Ég opna augun. Fokk hvað er klukkan. 1.03. Jæja halda áfram með Hannes. Alltof þreyttur. Magic og bounty kippir því í lag. Labba út í snjóinn, stytti mér leið
*klikk*
ljósið kviknar alltaf þegar ég labba framhjá. Pitsukassar fyrir spúkí gluggann sem ekkert sést inn í.
*Klikk*
Ég kippist við og lít upp. Einhver læti við innganginn. Fullur gaur með hundinn sinn með dólgslæti og tveir aðrir aðsegja honum að drulla sér. Um að gera að djamma á þriðjudagskvöldi. Leðurklæddi gaurinn lítur varla við meðan hann rennur tvennunni í gegn. Af hverju er hann ekki í grænu peysunni eins og alltaf? Af hverju eru svona margir bílar fyrir utan? Hvar eru allir? Löggan er kominn að rífa kjaft. Labba framhjá að húsinu með ljósinu
*klikk*
Heyrist í hurðinni. Áttu ekki að mæta núna? Jú einmitt er að koma. Var ég búinn með Hannes? Sef í eina 1 mínútu. Fer fram. Alveg slökkt. Kíki inn í herbergið og hún er sofandi. Fer í hitt herbergið og hún er sofandi. Hvað er að þeim? Kukkan er samt bara 1.11. Hálf síða af bulli hefur bæst við Hannes.
*klikk*
Kviknar ljósið þegar ég labba fram hjá húsinu. Alltaf á sama stað kviknar það. Sami gaur að með lætin? Fer inn og spyr hvort hann sé alltaf hérna. Leðurlæddi gaurinn veit ekki hvað ég er að tala um. Ég labba út nema hundurinn kemur auga á mig. Stekkur á mig.
*klikk*
Pop-up blokker er að tjá sig. Klukkan er 1.02. Tvö verkefni eftir. Fokk drengur farðu fyrr að sofa.
If at first you don't succeed, then skydiving is definitely not for you.