Sko ég er með svipað hár og á fyrri myndinni, en til að það líti best út set ég svona frizz-ease serum frá toni&guy á meðan það er blautt og greiði það í hárið. Svo set ég strax froðu til að móta hárið betur, því krullað/liðað hár er náttúrulega meðfærilegast þegar það er blautt. Mér finnst persónulega best að hálfpartinn greiða fropuna í hárið með puttunum, og kreista hárið síðan upp, vona að þú skiljir hvað ég er að meina.. Allavega, mæli með að þú prófir þetta og ég vona að þetta hjálpi...