Þar kom kallið.
Kvalin kona
kveður mig til sín.
Gríp með mér
kyngervi, kökukefli.
Sæll herra Heimur!
Ég er komin
með mitt eina enn.

Sýg lífsins vökva
úr þrýstnum brjóstum,
kona á konu.
Ligg á barmi móður,
móðir á barmi áfalls.
Sæll herra heimur!
Ég er kona
með órökstuddar tilfinningar.

Vonsvikinn faðir
virðir fyrir sér spottalausa veru.
Pakkar í flýti
vélsögum,
kvennafarssögum .
Sæll herra heimur!
Ég er kona
og ég kýs að vera með ….