úff … mér líst miklu betra á listann yfir það sem þú ert að hlusta á í dag en þær sveitir sem þér finnst bestar. ég hef ekki heyrt allar hljómsveitir sem hafa verið til þannig að ég get ómögulega dæmt um hvaða 5 hljómsveitir taki öllum öðrum sveitum í heiminum fram… en þessar eru í mestu uppáhaldi hjá mér …. Stereolab The Birthday Party The Residents Yo La Tengo Bright Eyes …svo svona auka 5… Sonic Youth Cat Power Pavement Shellac Low + uppáhaldstónlistarmennirnir Nick Cave Tom Waits Megas...
hehe. hef bara aldrei haft gaman af nir… annars er frábært atriði í myndinni “Sonic Youth In 1991: The Year Punk Broke” þar sem Kim Gordon er að varalita og mála Kurt og trommarann í Nirvana ….
sammála með Daydream Nation og Washing Machine - báðar einnig í mestu uppáhaldi hjá mér af plötunum þeirra. svo má ég reyndar alveg hafa þá skoðun á nirvana sem mér langar til
Frábær hljómsveit, langaði bara að benda á það að Bob Bert spilaði líka á trommurnar Bad Moon Rising og að undan honum hafði Jim Sclavunos stuttlega barið húðirnar með S.Y. en hann hefur undanfarin ca. 10 ár verið auka trommuleikari hjá Nick Cave & The Bad Seeds. Annars þá fór Bob Bert í hljómsveitina Pussy Galore á eftir S.Y. þar sem aðrir meðlimir voru meðal annars Jon Spencer (Jon Spencer Blues Explosion) og Neil Hagerty (Royal Trux). Annars þá verð ég að segja að mér finnst Dirty mun...
alrangt hjá þér. á öllum tímum eru uppi fólk sem heldur því fram að öll góð tónlist hafi verið samin og búin til áður en það fæddist sjálft og að það sem nútíminn hefur fram að færa sé bara rusl. Á sjötta áratugnum var hellingur af fólki sem var ekkert að hlusta á bítlana ofl í þeim dúr heldur velti sér upp úr td klassískri tónlist, djassi og blús og hristi hausinn yfir þessu tyggjókúlupoppi sem bítlarnir og co usu yfir jörðina. Ég er einn af þeim sem vill ekki vakna upp eftir 30 ár og taka...
ég legg til að það verði stofnað sér áhugamál um þessa nirvana sveit þannig að við losnum við þessar 15-20 greinar sem eru sendar inn um þær á mánuði af rokk áhugamálinu
það er líka skjáseins merki á ryksugunni minni! það er ansi erfitt að eigna sér merki sem er strik með hring utan um - hæpið að segja að einhver hafi stolið “merkinu” frá einhverjum öðrum
jamm auðvitað. meiri hlutinn af þessu “commercial” rokki er hundleiðinlegt

Jesus was a black man - No Jesus was Batman - No, that was Bruce Wayne
ég held að þú sért eitthvað að rugla góði. Tom Waits hefur aldrei gert neitt lag með The Cardigans, þú ert líklega að rugla honum saman við Tom Jones - en þeir eiga reyndar ekkert sameiginlegt fyrir það að heita báðir Tom
held þetta sé bara vitleysa. hef heyrt sömu söguna um að Dark Side Of The Moon eigi að passa við 2001: Space Odyssey - það er a.m.k. mjög ólíklegt að platan passi við báðar þessar myndir - og ef svo er þá eru afar litlar líkur á að það sé með ráðum gert. Það er til alveg fullt af brjálæðingum í heiminum sem hafa ekkert að gera en að pæla í svona hlutum - ætli það sé ekki best að forðast að falla í slíkar gildrur…

Jesus was a black man - No Jesus was Batman - No, that was Bruce Wayne
það var reyndar tónlist eftir Beethoven en ekki Bach í Clockwork Orange - en þess má reyndar til gamans geta að Wendy Carlos sem spilaði hluta tónlistarinnar varð fyrst fræg/frægur (hét þá Walter Carlos) fyrir að gefa út plötuna Switched On Bach
Suds & Soda með dEUS var að rifja upp kynni mín við hljómsveitina í gær, og auðvitað þetta snilldarlag líka. alveg músík sem ég vildi heyra í partý

Jesus was a black man - No Jesus was Batman - No, that was Bruce Wayne
hallelújah ég held að allir hérna viti að það hafi einu sinni verið til hljómsveit sem hét Nirvana og söngvarinn skaut sig í hausinn. move on people…

Jesus was a black man - No Jesus was Batman - No, that was Bruce Wayne
ég kalla Scooter ekki neitt - og allra síst eitthvað með endingunni “tónlist”

Jesus was a black man - No Jesus was Batman - No, that was Bruce Wayne
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..