Ég verð að halda þessu áfram í ættinni, frændi minn hannaði nú þessa braut, Jón S. Halldórsson. Ég var að flækjast þarna í sumar og þá var brautin opin, það voru reyndar einhverjir gaurar að ná einhverjum bíl inn á brautina sem hafði farið útaf. Það hafði verið keppni þar um daginn. En það var samt einhver að leika sér á brautinni á fjölskyldubílnum sínum þar á meðan að gaurarnir voru að vinna þar.