Þarf að selja þrumuna mína..
Hún er af gerðinni Toyota Carina II og er árgerð ´88. Hún er 1600 keyrð eitthvað um 217.000km.. undanfarið hef ég verið að eyða miklum tíma í að laga hana.. en nú er svo komið að pabbi vill fara að fá bílskúrinn sinn aftur.. hún er í mjög fínu ástandi.. en ég verð því miður að láta hana fara..

vélin er í mjög góðu standi, og torgar mjög vel (kemst upp kambana í 5.gír auðveldlega),bíllinn er bara 985kg og skilar 1600 vélin því sæmilegasta krafti.

það sem ég er búinn að gera er: setja nýtt bremsurör, skipta um kúplingu(allt saman), búinn laga hana alla að innan og núna í dag kláraði ég að skipta um brettin að framan, ég er búinn að kaupa málningu en hef bara ekki tíma í þetta lengur og verða að losa bílskúrinn..


Þess vegna var ég að hugsa um að selja hana með málningunni og öllu saman á svona sirka 75.000kall, annars bara hæst bjóðandi. það sem er þegar komið hefur kostað eitthvað um 60.000 og öll vinnan sem ég er búinn að eyða í hana er mikil..

endilega ef einhver hefur áhuga láta heyra í sér..

kv.
Greini