Til að hægt sé að keyra php (eða asp, jsp…), hvort sem er á tölvunni heima hjá þér eða hjá internetþjónustuaðila, þarf að vera uppsettur php túlkur á vélinni. Að keyra php er ekki það sama og að keyra venjulegan html kóða. Allt sem þú skrifar í php þarf að keyra sérstaklega á servernum (heima eða annarsstaðar) áður en vafrinn fær kóðann. Ég myndi mæla með því að þú myndir reyna að finna einhverja lesningu um server-side forritun. Örugglega fullt af svoleiðis lesefni á netinu :) Kveðja, ELM