Microsoft Flight Simulator 2002 Microsoft sendi frá sér fréttatilkynningu nú í vikunni um að þeir muni setja FS2002 á markað nú í haust. FS2002 verður byltingarkennd útgáfa hvað flugherma varðar. FS2002 mun innihalda rauntíma og gagnvirka flugumferðarstjórn (Live ATC), ennþá þróaðra landslag og textúrur á flugvélunum sem munu þarfnast nýrrar tækni sem Microsoft kallar “AutoGen” og svo munu náttúrulega bætast við nýjarflugvélar. Þær verða Boeing 747-400 og Cessna Caravan í bæði land og sjó útgáfu.

Þannig að það er ljóst að maður þarf að fara að safna fyrir nýrri tölvu mjög fljótlega!!!

grizzly