Fín hugleiðing hjá þér Midgardur. Einnig er punktur Xcalibre viðeigandi. Það er hárrétt að það er ekkert samasem merki á milli kynlífs og ástar; ástin er af allt öðrum meiði en kynlíf, þ.e. hefur alls ekkert með kynlíf að gera. Að “njóta ásta”, eða “elskast” er því einungis viðeigandi þegar um kynlíf fólks sem ber heitar ástartilfinningar hvort til annars er að ræða. Þó efast ég ekki um að þegar svo ber undir að þá sé ástartilfinningin einna sterkust, þ.e. þegar um raunverulega ást til fólks...